Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Í miðbænum hringdi vitni að rafskútuslysi í lögreglu en þá hafði 66 ára gamall maður dottið af rafskútu sinni og á húsvegg. Talið er að hann hafi misst meðvitund í kjölfar þess og hlaut blæðingu úr nefi. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á bráðadeild þar sem hann hlaut aðhlynningu.
Tvö önnur slys tengd rafskútum urðu í gærkvöldi, það fyrra klukkan rúmlega fimm þegar bifreið var ekið á ellefu ára dreng á skútu sinni. Móðir drengsins var á vettvangi ásamt lögreglu en hann var fluttur á bráðadeild til aðhlynningar. Klukkan fjögur í nótt datt ungur maður af rafskútu sinni og fékk áverka á augabrún. Þegar hann ræddi við lögreglu mundi hann lítið hvað hafði gerst og var fluttur á bráðadeild. Hann er grunaður um ölvun við akstur.
Í Hafnarfirði barst lögreglu tilkynning um fíkniefni sem höfðu fundist á leikvelli. Vegfarendur afhentu lögreglu fíkniefnin í nestisboxi en þau eru talin tilheyra ungmennum sem venja komur sínar þangað.
Þá var tilkynnt um þjófnað í Hafnarfirði en maður fór inn á hótel og stal yfirhöfn og farsíma af starfsmanni. Í yfirhöfn starfsmannsins voru einnig bíllyklar hans.
Í Breiðholti var tilkynnt um líkamsárás á starfsmann pizzuveitingastaðar. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu en ekki er vitað um áverka hjá starfsmanninum.