Lífið samstarf

Bylgjan órafmögnuð, þriðja kvöld

Bylgjan
GDRN og Magnús Jóhann á Bylgjan órafmögnuð 2022
GDRN og Magnús Jóhann á Bylgjan órafmögnuð 2022 Rakel Rún

Tökur á Bylgjan órafmögnuð fóru fram í vikunni.

Miðvikudagskvöldið 5. október fór fram síðasta upptökukvöld Bylgjan órafmögnuð í Bæjarbíói Hafnarfirði. Þættirnir verða fluttir á fimmtudögum frá lok október og verður sá síðasti á dagskrá fyrstu helgi desember mánaðar. Vala Eiríksdóttir dagskrágerðarkona á Bylgjunni sá um að halda utanum dagskrá og tók tal af tónlistarfólki á milli laga sem gerir tónleikana að einstakri upplifun til að kynnast listamönnunum betur. 

Á þessu síðasta kvöldi voru það GDRN og Magnús Jóhann og Björgvin Halldórsson kom fram með börnum sínum Krumma og Svölu og Margréti Eir stórvinkonu fjölskyldunnar. 

Að lokinni tónleikaröðinni sagði Ósk Gunnarsdóttir tónleika skipuleggjandi "Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt og bara mögnuð kvöld að baki. Andinn í Bæjarbíó skapaði hlýja og innilega stemningu milli tónlistarfólks og áhorfenda".

Hér eru nokkrar myndir frá síðasta upptökukvöldinu

Elva Rós og Karen ÓskRakel Rún
Signý Antonsdóttir og Stefán Ingi BjörnssonRakel Rún
Sara Pálmadóttir, Anne, Thelma Þorleifsdóttir, Lovísa Karítas MagnúsdóttirRakel Rún

Björgvin HalldórssonRakel Rún
Spjallað milli lagaRakel Rún
Svala og Margrét Eir söngdívurRakel Rún
Krummi og Svala BjörgvinsbörnRakel Rún

Vala og Margrét Eir, alltaf tími fyrir knúsRakel Rún
Ósk Gunnarsdóttir, skipuleggjandi tónleikannaRakel Rún

Bylgjan þakkar öllum gestum tónleikanna kærlega fyrir komuna!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.