Tveimur mánuðum áður höfðu Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flogið sem fyrstu flugfarþegarnir hérlendis með fyrstu rafmagnsflugvél Íslendinga, hinni tveggja sæta TF-KWH. Sú er af gerðinni Pipistrel Velis.

Með flughæfisskírteini Flugöryggisstofnunar Evrópu varð Pipistrel fyrsta rafmagnsflugvél heims til að hljóta alþjóðlega vottun til almannaflugs. Hún má því teljast fyrsta rafknúna farþegaflugvélin.
Litla Pipistrel-vélin er hins vegar ætluð sem kennsluflugvél, fyrir einn flugkennara með einn flugnema. Þótt flugmaður geti jafnframt nýtt hana til að fljúga með einn farþega mun hún seint teljast valkostur í arðbært farþegaflug á vegum flugfélaga.

Eftir fyrsta flugið þann 27. september síðastliðinn telst Alice núna einna líklegust til að verða fyrsta rafmagnsflugvélin sem flugfélög munu taka í notkun til almenns farþega- og vöruflugs.
Framleiðandinn, fyrirtækið Eviation, ísraelskt að uppruna en staðsett í Bandaríkjunum, hyggst þó gefa sér nægan tíma til að tryggja að þegar að þeim tímapunkti kemur verði hún orðin öruggur farkostur. Eviation áætlar að taka næstu fjögur til fimm ár til frekari þróunar og flugprófana og stefnir að því að hún verði tilbúin til afhendingar árið 2027.

Alice er gerð til að bera níu farþega og tvo flugmenn. Flughraði hennar í farflugi er áætlaður verða 480 kílómetrar á klukkustund og flugdrægið 460 kílómetrar, sem þýðir að hún gæti hentað íslensku innanlandsflugi. Áætlað er að 30 mínútur taki að hlaða rafgeymana á milli flugferða og að hún þurfi 840 metra langa flugbraut til flugtaks.

Eviation hyggst bjóða flugvélina í þremur útfærslum; sem níu sæta farþegaflugvél, sem fimm sæta forstjóraflugvél með lúxusinnréttingu og sem vöruflutningavél. Fyrsta flugfélagið til að kaupa hana var hið bandaríska Cape Air, sem pantað hefur 75 eintök. Deutsche Post hefur pantað 12 flugvélar til að nýta í samstarfi við DHL fyrir pakkasendingar. Þá tilkynnti GlobalX Airlines í september að það hefði pantað 50 flugvélar.
Hér má sjá myndband Eviation af fyrsta flugi rafmagnsflugvélarinnar Alice: