Þetta er niðurstaða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Þar má sjá að maðurinn hafi leigt bíl af gerðinni Suzuki Grand Vitara hjá bílaleigunni í tvær og hálfa viku frá 22. júlí 2021 fyrir 255 þúsund krónur.
Þegar maðurinn skilaði bílnum var honum gert að greiða 250 þúsund krónur aukalega vegna tjóns sem bílaleigan taldi að hafi orðið á bílnum á leigutímanum. Viðskiptavinurinn taldi sig hins vegar ekki hafa verið valdur að tjóninu en greiddi þó umkrafinn kostnað.
Óskaði eftir staðfestingu á fjártjóni bílaleigunnar
Eftir að viðskiptavinurinn var kominn aftur til síns heima óskaði hann eftir því við bílaleiguna að hún legði fram nákvæma greiningu á tjóninu og staðfestingu á raunverulegu fjártjóni vegna viðgerðarinnar.
Bílaleigan varð hins vegar ekki við beiðninni og krafðist maðurinn í kjölfarið að bílaleigan myndi endurgreiða honum viðgerðarkostnaðinn, það er 250 þúsund krónur. Bílaleigan hafnaði kröfunni.
Í úrskurðinum kemur fram að bílaleigan hafi talið manninn hafa ekið bílnum yfir stórgrýti sem hafi valdið skemmdum á undirvagni bílsins. Bílaleigan sendi manninum myndir af skemmdunum á bílnum en hann fékk þó ekki staðfest að skemmdirnar hafi í raun verið af undirvagni umrædds Suzuki Grand Vitara enda hafi maðurinn ekki verið viðstaddur skoðunina.
Gekk ekki að fá skýringar á reikningnum
Maðurinn hafi svo óskað eftir sundurliðuðum reikningi vegna viðgerðarinnar, en á honum var hvorki að finna nákvæma greiningu á tjóninu né kostnað við efni og vinnu vegna viðgerðarinnar. Ekkert hafi gengið að fá nánari skýringar á reikningnum.
Maðurinn kveðst heiðarlegur og tilbúinn að greiða fyrir það tjón sem hann hafi sannarlega valdið, en að bílaleigan hafi hins vegar ekki tekist að sýna fram á raunverulegt fjártjón þrátt fyrir ítrekaðar óskir mannsins um það.
Lagði fram skýrslu bifvélavirkja
Ennfremur kemur fram í úrskurðinum að bílaleigan hafi lagt fram skýrslu bifvélavirkja sem hafi tekið á móti og séð um viðgerð á bílnum. Kvaðst bílaleigan fullviss um að umræddar skemmdir á undirvagni hafi ekki verið til staðar fyrir leigutímann. Bílaleigan fylgi ströngum verklagsreglum um yfirferð bíla fyrir hverja leigu.
„Það tjón sem hafi verið á undirvagni bifreiðarinnar hefði því uppgötvast fyrir leigutíma sóknaraðila, hefði það verið til staðar.“
Erfitt að átta sig á hvernig raunverulegt tjón er fundið út
Fram kemur í gögnum að kostnaðarmat bílaleigunnar vegna tjónsins hafi verið svokallað CABAS tjónamat fyrirtækis sem ekki er nafngreint, að fjárhæð 218 þúsund króna, auk virðisaukaskatts. Hafi því verið aflað einhliða af hálfu bílaleigunnar.
„Tjónamatið er sett fram á þann hátt að erfitt er að átta sig á því hvernig raunverulegt tjón er fundið út og að hvaða leyti það megi rekja til [viðskiptavinarins] með óyggjandi hætti.
Þá metur nefndin sem svo að ekkert liggi fyrir sem sýni fram á að bílaleigan hafi greitt þann viðgerðarkostnað sem tilgreindur sé í kostnaðarmatinu, eða hvaða fjárhæð, ef önnur en greint er frá í fyrrnefndu mati, hafi verið greidd af varnaraðila. „Ekki liggur fyrir hvort varnaraðili hafi fengið tjón sitt bætt frá vátryggingarfélagi sínu í heild eða að hluta, en slíkar upplýsingar eru nauðsynlegar til að meta hvort skaðabótaréttur hafi stofnast,“ segir í úrskurðinum.
Sömuleiðis geti ljósmyndir bílaleigunnar af undirvagni bílsins ekki fært sönnur á tjóni hans enda sé óljóst hvort umræddar ljósmyndir séu í raun af undirvagni þess bíls sem viðskiptavinurinn leigði.
„Með hliðsjón af öllu framangreindu verður ekki séð á hvaða grundvelli varnaraðili krafðist greiðslu að fjárhæð 250.000 krónur frá sóknaraðila,“ segir í úrskurði nefndarinnar.
Bílaleigunni beri því að endurgreiða viðskiptavininum 250 þúsund krónur, auk málsskots- og meðgerðargjalds, alls 40 þúsund krónur.