Pique endaði ferilinn á rauðu spjaldi þrátt fyrir að koma ekki inn á

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gerard Pique átti ekki beint sinn besta dag.
Gerard Pique átti ekki beint sinn besta dag. Ion Alcoba/Quality Sport Images/Getty Images

Gerard Pique tilkynnti á dögunum að skórnir væru á leiðinni á hilluna frægu. Hann var á varamannabekknum þegar Barcelona bjargaði 1-2 sigri gegn Osasuna í kvöld, en þessi reynslumikli leikmaður fékk að líta rauða spjaldið fyrir að nöldra í dómurum leiksins í hálfleik.

Það má því með sanni segja að ferill Pique hefi ekki endað vel. Hann sá lið sitt lenda undir gegn Osasuna í kvöld þegar heimamenn komu boltanum í netið strax á sjöttu mínútu leiksins, áður en stjörnuframherjinn Robert Lewandowski fékk að líta sitt annað gula spjald, og þar með rautt, eftir um hálftíma leik.

Staðan var því 1-0 í hálfleik, Osasuna í vil. Spænski miðvörðurinn var eitthvað ósáttur við frammistöðu dómara leiksins og rölti inn á til að eiga við hann orð eftir að hálfleiksflautið gall. Hann fór þó yfir strikið í nöldrinu og fékk að líta beint rautt spjald að launum. Ferli þessa sigursæla knattspyrnumanns endar því á heldur súrum nótum.

Þrátt fyrir að þurfa að leika stóran hluta leiksins manni færri tókst gestunum í Barcelona þó að kreista út sigur. 

Pedri jafnaði metin fyrir liðið snemma í síðari hálfleik áður en Raphinha tryggði liðinu 1-2 sigur með marki á 85. mínútu.

Barcelona trónir því enn á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar með 37 stig eftir 14 leiki, fimm stigum meira en Real Madrid sem situr í öðru sæti, en á þó leik til góða. Osasuna situr hins vegar í sjötta sæti deildarinnar með 23 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira