Vanda ræddi við Fótbolti.net í dag og staðfesti að KSÍ væri meðal þeirra sambanda sem styddi við bakið á Infantino, eða hefði stutt við bak hans öllu heldur. Það stefnir allt í að Infantino verði endurkjörinn sem forseti FIFA en orðspor hans hefur beðið hnekki vegna atburðanna í kringum HM í Katar.
Infantino var ætlað að þrífa skítinn og taka til hjá FIFA eftir að Sepp Blatter og fleiri voru reknir með skömm. Það virðist ekki hafa gengið eftir og er Infantino fluttur til Katar.
Í viðtali sínu við Fótbolti.net sagði Vanda að KSÍ hefði sent inn bréf til stuðnings Infantino því „ef horft er til lengri tíma þá hefur hann komið ýmsu góðu í verk.“
„Í ljósi síðustu daga og þeirra vonbrigða sem við urðum fyrir með Infantino og FIFA munum við endurskoða þessa ákvörðun. Við höfum einnig komið vonbrigðum okkar skýrt á framfæri við fulltrúa FIFA,“ bætti Vanda við.
Vilja segja sig úr FIFA
Danir hafa gengið skrefinu lengra. Knattspyrnusambandið þar í landi hefur gefið út að það styðji ekki endurkjör Infantino. Þá hefur það einnig sagt að það muni íhuga að segja sig úr FIFA.
„Ákvörðunin hefur ekki verið tekin en við höfum verið þessarar skoðunar í langan tíma. Við höfum verið að ræða við önnur Norðurlönd síðan í ágúst,“ sagði Jakob Jensen, framkvæmdastjóri danska knattspyrnusambandsins.
Denmark have revealed they are ready to discuss a blanket withdrawal from FIFA alongside other UEFA nations amid the ongoing row over the #OneLove armbands.https://t.co/JP07HcQxP5
— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) November 23, 2022
„Norðurlöndin vinna náið saman og ef Danir bjóða til umræðna, hverjar svo sem þær umræður eru, þá munum við að sjálfsögðu taka þátt og hlusta á þeirra sjónarmið,“ sagði Vanda að endingu.