
Heldur fast í hið íslenska „þetta reddast gen“
„Það að halda áfram og hafa gaman, það skiptir mig mestu máli. Svo lengi sem ég nýt þess og finnst þetta skemmtilegt,“ segir Sif í viðtali við Bakaríið á Bylgjunni á dögunum.
Sif hefur verið búsett í Danmörku síðan um aldamótin og þrátt fyrir að vera orðin ansi dönsk að eigin sögn viðurkennir hún þó að hún haldi fast í hið íslenska „þetta reddast gen,“ sem sé jú töluvert á skjön við hina ofurskipulögðu Dani.
Það er svo mikið skipulag hjá Dönunum og dagatalið alltaf uppi við, ég er ekki alveg þar. Þau hlægja oft mikið af mér á skrifstofunni, því sama hvernig staðan er, leysi ég hlutina. Þetta reddast og við reddum þessu!
segir Sif og hlær.
Á skrifstofu Sif Jakobs Jewellery í Kaupmannahöfn starfa nú orðið um sextíu manns en í heildina eru starfsmenn fyrirtækisins orðnir hátt í níutíu talsins.

Fann strax sterka tengingu við Kaupmannahöfn
Árið 1997 ákvað Sif að elta drauminn og fór í gullsmíðanám til Svíþjóðar en þar lauk hún fjögurra ára námi á þremur árum en eftir námið fluttist hún til Kaupmannahafnar.
Það var draumurinn. Ég held að við Íslendingar séum að fíla Danmörk mjög vel og mér líður mjög vel hér í Kaupmannahöfn, fann strax að hér ætti ég heima. Þetta er stórborg en samt sem áður mjög lítil, þú kynnist fólki mjög fljótt.
Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á viðtalið við Sif í Bakaríinu í heild sinni.
Eftir starfsnám bæði í Kaupmannahöfn og Ítalíu ákvað Sif að reyna við drauminn og stofna sitt eigið merki, Sif Jakobs Jewellery. Þetta var það herrans ár 2008, ár hrunsins.
„Í byrjun var ég aðallega á íslenska markaðinum til að finna hvernig fólki tæki á móti hönnuninni minni og skartgripunum.“
Þrátt fyrir heldur óvenjulegt viðskiptalandslag á þessum tíma segist hún strax hafa fundið fyrir miklum meðbyr hér heima og færði því fljótt út kvíarnar og yfir á þann danska.
„Það gekk líka mjög hratt, þrátt fyrir að þetta hafi verið á þessu tímabili hrunsins.“

Sjórinn tengingin við Ísland
Ítalía hefur verið hennar annað heimili síðan árin í starfsnáminu og má sjá greinilegan innblástur frá ítölskum glamúr og elegance í hönnun hennar. Heimalandið stendur henni einnig nærri og segist hún sækja mikinn innblástur til hinnar stórbrotnu íslensku náttúrufegurðar.
Heimalandið. Þar sem ég var umkringd stórbrotnum fjallgörðum, dularfullum lindum og eldfjöllum,
segir Sif en það mætti kannski segja að einskonar dramatískur lúxus einkenni stíl hennar og hönnun.
Sif á danskan eiginmann, Søren Dahl, og eru þau núna búsett norðan við Kaupmannahöfn ásamt sjö ára syni þeirra, Sixten Jakobs.

Ég bý við sjóinn og svo er skógur við hliðina. Mér fannst gott að komast aðeins nær náttúrunni því að búa við sjórinn er mjög mikilvægt fyrir mig, það tengir mig við Ísland.
Danska konungsfjölskyldan og stórstjörnur meðal viðskiptavina
Fyrstu verslunina í Kaupmannahöfn opnaði Sif á hinu fræga Striki fyrir um tveimur árum en vegna áhrifa heimsfaraldursins opnuðust tækifæri á þessari eftirsóttu verslunargötu sem hefur reynst erfitt að fá pláss á.
Sif hefur hlotið mikla viðurkenningu og verðlaun fyrir hönnun sína erlendis og vann meðal annars verðlaunin Retail Jewellery Awards í London og Fashion Jewellery Brand of the Year í Þýskalandi.
Stjörnur á borð við Katy Perry, Miley Cyrus, Cheryl Cole og Beckham fjölskyldan eru meðal aðdáenda merkisins en einnig er danska konungsfjölskyldan meðal tryggra viðskiptavina.
Let yourself shine, eða leyfðu þér að skína er eitt af slagorðum merkisins og segir Sif engan viðskiptavin yfir annan hafinn. Hún vilji að allir geti leyft sér að skína og skreyta sig. Hennar draumur og markmið séu að allir geti eignast skartgripi frá henni og taki verðlagið mið af þeirri hugsjón en eitt af megin stefnum merkisins er að bjóða upp á lúxusvörur á viðráðanlegu verði.
Hannar mest á ferðalögum
Aðspurð hvort að það gefist minni tími í að hanna og skapa þegar fyrirtækið er orðið eins stórt og raun ber vitni, segist hún helst fá yfir sig andann og sköpunargleðina á ferðalögum.
„Af því að þegar ég er á skrifstofunni er voðalega mikið að gera en ég er með rosalega gott teymi á bak við mig og án þeirra gæti ég þetta ekki. Þetta er bara svo auðvelt í dag, [að vinna á ferðalögum] þú ert með Facetime og allt það og þegar ég sit og er að skyssa eða þegar ég fæ hugmyndir þá hringi ég bara á Facetime og sýni þeim á skrifstofunni og þau byrja að teikna allt upp í tölvu. “

Tekur lengri tíma að sanna sig sem kona í viðskiptum
Aðspurð hvort að henni hafi alltaf fundist hún standa jafnfætis karlmönnum sem kona í viðskiptum, er svarið einfalt.
Nei.. NEJ! segir hún ákveðin og brosir.
Þú þarft að sanna þig og það tekur tíma. Sérstaklega í byrjun. En svo þegar allt fer að rúlla og þú getur sýnt fram á tölur og allt gengur vel þá loksins er maður orðinn þeim jafnvígur.
Það er mikill hugur í Sif sem segir stefnuna næst vera inn á Bandaríkjamarkað og þar fast á eftir Asíumarkað.
Halda áfram og hafa gaman, það skiptir mig mestu máli. Svo lengi sem ég nýt þess og finnst þetta skemmtilegt. Þetta er rosalegur lífstíll því þetta er vinna allan sólarhringinn og þú ert alltaf að. En mér finnst þetta rosalega gaman og mér finnst ég heppnasta stelpan í heiminum.

Morgunþátturinn Bakaríið er á dagskrá alla laugardaga frá 9 - 12 á Bylgjunni. Hér fyrir neðan er hægt að hlusta í heild sinni á þáttinn frá 19. nóvember sem sendur var út frá Kaupmannahöfn.