Fótbolti

Nkunku sagður vera kominn til Chelsea

Árni Jóhannsson skrifar
Nkunku í Chelsea búningnum
Nkunku í Chelsea búningnum

Sögusagnir um það að Chelsea sé að krækja í franska leikmanninn Christopher Nkunku. Nkunku kemur frá RB Leipzig og mun leika með Chelsea frá og með næsta sumri.

Fabrizio Romano segir á Twitter síðunni sinni fyrr í dagt að það sé hundrað prósent öruggt að framherjinn Christopher Nkunku muni spila með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni frá og með næst sumri. Allir samningar hafa verið undirritaðir og beðið er eftir tilkynningum frá klúbbunum.

Nkunku hefur spilað 109 leiki fyrir RB Leipzig og skorað í þeim 43 mörk. Nkunku kemur upp í gegnum unglingastarf Paris St. Germain en hann hefur spilað átta leiki með franska landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×