Innlent

Nafn­greindi manninn sem hélt vændi­skonu og nauðgaði

Kjartan Kjartansson skrifar
Dómurinn var upphaflega birtur á vefsíðu Héraðsdóms Reykjavíkur í desember en þá kom nafn mannsins ekki fram.
Dómurinn var upphaflega birtur á vefsíðu Héraðsdóms Reykjavíkur í desember en þá kom nafn mannsins ekki fram. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjavíkur birti nafn manns sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að nauðga vændiskonu og halda henni í gíslingu í dag. Nafn mannsins var upphaflega afmáð úr dómnum en dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að birta það samkvæmt reglum.

Samkvæmt skriflegu svari Ingibjargar Þorsteinsdóttur, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, við fyrirspurn Vísis bar að gefa út dóminn með nafni dómfellda samkvæmt reglum dómstólasýslunnar. Uppfærð útgáfa dómsins með nafni mannsins var birt nú um miðjan dag.

Maðurinn heitir Vilhjálmur Freyr Björnsson og er tæplega þrítugur. Dómurinn yfir honum var kveðinn upp 20. desember en nafn hans var ekki getið þrátt fyrir þungan fangelsisdóm og að engin tengsl væru á milli hans og fórnarlambsins. Allajafna eru nöfn sakborninga birt í dómum í öllum tegundum ofbeldismála nema til að vernda brotaþola ef þeir eru tengdir sakborningnum.

Nafnleysið sætti gagnrýni. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagði þannig ekkert réttlæta nafnleynd vændiskaupenda af þessu tagi. Hún væri til þess fallin að hlífa gerendum.

Í dómnum kom fram að Vilhjálmur Freyr braut bein í andliti konu sem hafði selt honum vændisþjónustu. Að sögn konunnar hafði hún veitt honum þjónustu í klukkustund þegar hann krafði hana um endurgreiðslu. Þegar hún sagðist ekki getað útvegað honum peningana fyrr daginn eftir hafi hann barið hana, tekið af henni símann og ítrekað tekið hana hálstaki. Í kjölfarið hafi hann margsinnis nauðgað henni. Frelsissviptingin hafi staðið yfir í um þrjár klukkustundir.

Vilhjálmi Frey var gert að greiða konunni þrjár milljónir króna í miskabætur. Hann játaði brot sitt að litlum hluta. Við sakfellingu var litið til þess að atlaga hans hefði verið ofsafengin og gróf. Hann hefði valdið alvarlegum áverkum og brotið gegn kynfrelsi og trúnaði sem konan sýndi með komu sinni. Ásetningur hafi verið sterkur og telja megi mildi að ekki urðu enn alvarlegri afleiðingar fyrir konuna.

Fréttin var uppfærð með nafni mannsins eftir að dómurinn var uppfærður á vef Héraðsdóms Reykjavíkur.


Tengdar fréttir

Segir ekkert réttlæta nafnleynd vændiskaupenda

Þingmaður Vinstri grænna segir ekkert réttlæta nafnleynd vændiskaupenda. Endurskoða þurfi hefð dómara um nafnleynd og ef lagabreytingu þurfi til verði þingheimur að bregðast við. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×