Handbolti

Nauðsynlegt að vera algjör proffi á svona stórmótum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson var nokkuð brattur í viðtali fyrir æfinguna í dag.
Gísli Þorgeir Kristjánsson var nokkuð brattur í viðtali fyrir æfinguna í dag. Vísir/vilhelm

„Það er frábært að byrja mótið á þessum tveimur punktum og þessi fjögur mörk sem við náum að vinna leikinn með eru mjög mikilvæg,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður íslenska landsliðsins, á æfingu liðsins í Kristianstad í Svíþjóð í dag.

„Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að hvert einasta mark á öllum stórmótum getur skipt gríðarlega miklu máli,“ segir Gísli sem fékk stundum að kenna á því gegn Portúgölunum í gær.

„Skrokkurinn er smá lemstraður en það er eiginlega alltaf sama rútínan á þessum stórmótum. Bara beint eftir leik er það endurhæfing, næra sig vel og öll þessi klisja sem maður á að gera, að vera bara algjör proffi. Það er á þessum stórmótum þegar maður þarf virkilega að sjá vel um sig og passa að lappirnar og skrokkurinn verði ferskar fyrir næsta leik.“

Klippa: Nauðsynlegt að vera algjör proffi á svona stórmótum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×