Handbolti

HM í dag: Rólegt og rómantískt á leikdegi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
HM I DAG11

Félagarnir Henry Birgir Gunnarsson og Stefán Árni Pálsson eru orðnir mjög spenntir fyrir leik kvöldsins gegn Ungverjum.

Það er gjörsamlega allt undir í þessum leik. Sigur og liðið fer áfram í milliriðil með fjögur stig og nánast komið með farseðil í átta liða úrslit mótsins. Tap aftur á móti flækir hlutina óþægilega mikið.

Í þætti dagsins fara strákarnir yfir stöðuna og ræða þessa frábæru stemningu sem nú er í Kristianstad en það verður víst fullt hús af fólki í kvöld og einstök stemning.

Þáttinn má sjá hér að neðan.

Klippa: HM í dag: Þriðji þáttur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×