Liverpool gæti flýtt kaupum á Neves til þess að hressa upp á miðjuna Hjörvar Ólafsson skrifar 15. janúar 2023 12:58 Ruben Neves ber fyrirliðabandið hjá Wolves. Vísir/Getty Forráðamenn enska fótboltafélagsins Liverpool leiða hugann að því að festa kaup á portúgalska miðvallarleikmanninum Ruben Neves í janúarglugganum til þess að ferskja upp á miðjuspilið hjá liðinu.
Þetta kemur fram í frétt Sunday Mirror en þar segir að Jürgen Kloppi hafi áður látið hafa eftir sér að Cody Gakpo verði eini leikmaðurinn sem Liverpool kaupi í janúar. Klopp er hins vegar mikill aðdáandi Neves að sögn enska miðilsins og svo gæti farið að þýski knattspynustjórinn fari þess á leit við stjórn félagsins að miðsvæðið hjá liðinu verði bólstrað með Portúgalanum á næstu dögum. Eftir 3-0 tap Liverpool gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í gær sagði Klopp frammistöðu liðsins í þeim leik vera þá verstu síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá liðinu árið 2015. Klopp gat ekki falið pirring sinn með stöðu mála hvað varðar spilamennsku liðsins undanfarnar vikur. Fabinho, Thiago Alcantara og Jordan Henderson hófu leik inni á miðjunni hjá Liverpool í ósigrinum gegn Brighton í gær en Naby Keita leysti Fabinho af hólmi og Harvey Elliott kom inná fyrir Henderson. Liverpool situr í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 28 stig eftir 18 leiki. Liðið hefur fengið á sig 25 mörk í þessum 18 deildarleikjum.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Atli og Eiður í KR Fótbolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira