Eftir að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsóttu bæina Borodianka og Bocha norður af Kænugarði í morgun og lagt blómsveig að minningarvegg í Kænugarði um þá sem fallið hafa í innrás Rússa áttu þær sameiginlega fundi með Zelensky og Dmytro Kuleba utanríkisráðherra Úkraínu. Fundurinn stóð í rúma klukkustund.

Vel fór á með Katrínu og Zelensky sem féllust í faðma í upphafi fundar. Að honum loknum undirrituðu þau síðan sameiginlega yfirlýsingu um samstarf ríkjanna. Katrín og Þórdís Kolbrún greindu meðal annars frá því hvernig áframhaldandi stuðningi Íslands sem herlausrar þjóðar við Úkraínu yfir á þessu ári.
Við segjum nánar frá þessum fundum um leið og upplýsingar berast en hér má sjá myndir sem aðstoðarmenn ráðherranna tóku fyrr í dag.

