Á vef Veðurstofunnar segir að norðan- og austanlands megi búast við éljum og frosti, en sunnan heiða verður hins vegar bjart veður og þar getur hitinn sums staðar farið rétt yfir frostmark yfir hádaginn.
„Á morgun er síðan útlit fyrir heldur hægari vind og minna af éljum, áfram þurrt og bjart veður suðvestantil. Hiti breytist lítið.“
![](https://www.visir.is/i/A32D8D4CE31D6D9D34E8001A98EBE3A989235DC5C22D9D2A2483A04582FE3AEA_713x0.jpg)
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag: Norðaustan 5-10 m/s. Skýjað með köflum og stöku él, en þurrt og bjart á suðvestanverðu landinu. Frost 2 til 7 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn.
Á sunnudag: Suðaustlæg eða breytileg átt 8-15 m/s og snjókoma með köflum, en hægari vindur og úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 1 til 10 stig, kaldast norðaustanlands.
Á mánudag: Norðaustan 5-13 og dálítil él norðan- og austanlands, en yfirleitt bjart sunnan heiða. Frost 2 til 8 stig.
Á þriðjudag: Austan 5-10, en 10-15 við suðurströndina. Dálítil él austanlands, en bjartviðri um landið vestanvert.
Á miðvikudag og fimmtudag: Ákveðin austlæg átt. Dálítil snjókoma eða rigning suðaustan- og austanlands, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 4 stig, en vægt frost fyrir norðan.