Bakhmut er nú nánast ekkert nema rústir en þrátt fyrir erfiðar aðstæður eru forsvarsmenn úkraínska hersins staðráðnir í að halda vörninni áfram, samkvæmt frétt New York Times, en fregnir af yfirvofandi falli Bakhmut hafa borist reglulega á undanförnum mánuðum.
Vilja halda Rússum í Bakhmut
Bakhjarlar Úkraínu hafa ráðlagt Úkraínumönnum að hörfa frá Bakhmut og segja að bærinn sé ekki svo mikilvægur og að betra sé hörfa og koma upp nýrri varnarlínu þar sem aðstæður til varnar eru jafnvel betri í hæðunum vestur af bænum. Það hafa Úkraínumenn ekki viljað gera.
Bakhmut hefur náð táknrænni merkingu fyrir bæði Úkraínumenn og Rússa. Hernám Bakhmut yrði fyrsti sigur Rússa í Úkraínu um langt skeið en Rússar vonast til þess að geta notað bæinn sem stökkpall lengra inn í Dónetskhérað og Donbas svæðið allt.
Óljóst er hvort herafli Rússlands hafi yfir höfuð burði til að sækja frekar fram eftir orrustuna um Bakhmut, hvenær sem henni líkur.
Úkraínumenn segjast valda miklu mannfalli meðal rússneskra hermanna í og við Bakhmut, þrátt fyrir erfiðar aðstæður fyrir úkraínska hermenn, sem hafa einnig fallið í miklum fjölda. Þar sem Rússar hafa að mestu verið að sækja fram þá hefur mannfallið líklega verið meira hjá þeim en Úkraínumönnum.
Eitt af markmiðum Úkraínumanna virðist vera að halda rússneska hernum uppteknum við Bakhmut á meðan nýjar sveitir eru þjálfaðar og byggðar upp til gagnárása sem búist er við á næstu vikum.
Berjast í miklu návígi
Blaðamaður NYT heimsótti Bakhmut í vikunni og ræddi þar við hermenn og yfirmenn. Þar var ítrekað fyrir honum að markmiðið væri að halda Rússum uppteknum í aðdraganda væntanlegra gagnárása Úkraínumanna.
„Þetta er virkilega erfið orrusta,“ sagði ofurstinn Pavlo Palisa. Hann stýrir því stórfylki sem heldur stærstum hluta víglínunnar í Bakhmut. „Við erum að hjálpa hersveitum okkar að vinna inn tíma, að safna skotfærum og vopnum og að undirbúa gagnsóknina.“
Hann tók einnig fram að hermenn í og nærri Bakhmut ættu við birgðaskort að stríða. Þá skorti meðal annars skotfæri fyrir stórskotalið og skriðdreka.
„Fyrir mig sem yfirmann, er sársaukafullt að sjá hvernig við borgum fyrir skotfæraskortinn með lífi hermanna okkar“.
Hér að neðan má sjá kort sem sýnir hvernig víglínan í Bakhmut hefur færst til á undanförnum vikum.
Í fyrstu reyndu Rússar að sækja beint inn í bæinn en voru stöðvaðir. Þá reyndu þeir að umkringja bæinn í staðinn og komust nærri því. Þeir voru þó stöðvaðir þegar Úkraínumenn sendu liðsauka á svæðið. Nú hafa Rússar aftur byrjað að sækja fram í bænum sjálfum.
This graphic by @nytimes shows the shifting frontlines in the city of Bakhmut from March 1 to April 1 to April 11 based on ISW and @criticalthreats data as well as satellite imagery by @Maxar.
— ISW (@TheStudyofWar) April 13, 2023
Full article: https://t.co/TGLKDMmIGH pic.twitter.com/hrtZMbVBBD
Hermennirnir sem rætt var við sögðu frá því að harðir bardagar hefðu átt sér stað innan borgarinnar og það í miklu návígi við Rússa. Stundum heyrðu þeir rússneska hermenn tala saman í nærliggjandi byggingum.
Palisa rifjaði upp eitt atvik þar sem Rússar notuðu skriðdreka til að sprengja gat á vegg fjölbýlishúss sem Úkraínumenn héldu. Rússneskir hermenn streymdu svo inn um gatið og börðust um blokkina við Úkraínumenn herbergi fyrir herbergi.
Úkraínumenn tóku þá ákvörðun að koma fyrir sprengjum í fjölbýlishúsinu, hlaupa út úr því og sprengja þær svo þar sem rússnesku hermennirnir voru enn inni.
Rússneskir herbloggarar hafa skrifað um þessa taktík Úkraínumanna. Einn slíkur sagði að úkraínumenn hefðu laðað málaliða Wagner inn í byggingu og svo sprengt hana í loft upp.
Several Russian sources talk about the Ukrainian tactic in Bakhmut where advancing chmobiks and convicts are lured into abandoned buildings which are then blown up. pic.twitter.com/ryOWnuvujr
— Dmitri (@wartranslated) April 13, 2023