Innlent

Allir styrkirnir í RÚV-verkefni

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, segir framleiðslufyrirtækja á þeirra vegum hafa fengið þau skilaboð að ekki væri meira fjármagn í boði, það hafi allt farið til verkefna á fyrir RÚV.
Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, segir framleiðslufyrirtækja á þeirra vegum hafa fengið þau skilaboð að ekki væri meira fjármagn í boði, það hafi allt farið til verkefna á fyrir RÚV. Vísir/Vilhelm

Kvikmyndasjóður hefur verið tæmdur til Ríkisútvarpsins þetta árið en engin verkefni hjá öðrum miðlum virðast fá styrk. Framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum segir jafnræðis ekki gætt og að þetta sé enn eitt dæmið um slæma samkeppnisstöðu, en Ríkisútvarpið hafi þegar gríðarlegt forskot. Ríkið leiti lausna en það sé í raun vandinn.

Kvikmyndamiðstöð Íslands veitir árlega styrki úr kvikmyndasjóði, meðal annars fyrir leikið sjónvarpsefni. Fjögur verkefni eru á lista, þrjú þeirra; Vigdís, Danska konan og Ráðherrann 2, hafa fengið vilyrði fyrir 200 milljónum króna í heildina í ár. 

Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum, segir að framleiðslufyrirtæki á þeirra vegum sem sótt hafi um hafi fengið þau svör að það væri ekki meira fjármagn til staðar.

Þrjú verkefni hafa fengið vilyrði fyrir 200 milljónum króna á árínu. Öll verkefnin eru í samvinnu við Ríkisútvarpið. Aðrir aðilar hafa fengið þau svör að sjóðurinn fyrir árið 2023 sé tómur.

„Það virðist vera að þessi vilyrði sem hafa verið gefin núna úr sjóðinum þetta ár fari öll til framleiðslufyrirtækja sem eru að vinna verkefni fyrir Ríkisútvarpið. Þannig áfram heldur þessi samkeppnisstaða okkar á einkareknu miðlunum að vera frekar sérkennileg, það er að segja að við sitjum alveg óbætt hjá garði þarna líka,“ segir Magnús en hann hefur áður gagnrýnt umsvif RÚV harðlega.

Hingað til hafi það verið eins konar óskráð regla að reyna að ráðstafa fjármagninu betur, þannig að aðrir miðlar komist einnig að, en nú sé ekki gætt jafnræðis. Erfitt sé að standa fyrir öflugri framleiðslu á meðan Ríkisútvarpið yfirtekur sjóðinn en ríkið sé búið að ráðstafa öllum peningnum til síns sjálfs. Ríkisútvarpið hafi þá haft ærið forskot fyrir.

„Þeim gengur miklu betur almennt að fjármagna verkefni í rauninni af því að þeir hafa þetta mikið fjármagn bara í ríkisstuðning í gegnum útvarpsgjöld. Síðan geta þeir notið endurgreiðslna, þeir geta notið Kvikmyndasjóðs, þeir eru í mjög sterku norrænu sölusamstarfi, forskotið er eiginlega út um allt,“ segir Magnús.

Alþingi fjallar nú um nýtt frumvarp um stuðning til einkarekinna miðla og mun Magnús sjálfur mæta fyrir þingnefnd á þriðjudag. Verði ekkert gert er ljóst að áhrifin á einkarekna miðla verði mikil.

„Það er svo sem ósköp einfalt, við munum bara þurfa að draga úr framleiðslu á meðan þeir stórauka framleiðslu, myndin bara skekkist meira og meira,“ segir hann. „Ríkið er að leita lausna, en ríkið er vandinn.“


Tengdar fréttir

Væri búin að taka RÚV af aug­lýsinga­markaði væri það lausnin

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og ferðamálaráðherra, segir daginn í dag hvorki vera góðan fyrir fjölmiðlun né lýðræði í landinu. Hún segir yfirvöld hafa stóraukið stuðning við einkarekna fjölmiðla og að hún væri búin að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði væri það lausnin við vanda fjölmiðla á borð við Fréttablaðið, sem gefið var út í hinsta sinn í morgun.

Lilja boðar breytingu á skattaumhverfi frjálsra fjölmiðla

Sérstök umræða um stöðu fjölmiðla fór fram á þinginu fyrr í dag. Þingflokksformaður Viðreisnar var málshefjandi. Flestir sammála um fyrirferð Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og kölluðu eftir heildstæðri stefnu ríkisstjórnarinnar í málinu. Ráðherra boðar skattaaðgerðir en vill ekki stofna „enn eina nefndina” til að greina stöðuna.

Síminn segir framtíð RÚV betur borgið utan samkeppnismarkaðar

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins leggur aftur fram frumvarp um að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Síminn fagnar framkomu málsins í umsögn og segir ánægjulega afleiðingu þess að hið opinbera fari af samkeppnismarkaði verði betra ríkisútvarp. „Ríkisútvarp þar sem dagskrárákvarðanir verða loks teknar af dagskrárstjóra en ekki auglýsingadeild.”

Telur galið að stóru fjölmiðlarnir fái ríkisstyrki

Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Vodafone og Stöð 2 segir að sér finnist það galið að fyrirtæki á borð við Sýn og Árvakur, sem reki stóra fjölmiðla, njóti sérstaks ríkisstuðnings. Taka þurfi á fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði og erlendra aðila sem starfi samkvæmt öðrum leikreglum en innlend fyrirtæki á auglýsingamarkaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×