Enski boltinn

Rifust á vellinum eftir sigurinn gegn Aston Villa

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Alltaf vinir en þurfa þó stundum að ræða saman á alvarlegu nótunum.
Alltaf vinir en þurfa þó stundum að ræða saman á alvarlegu nótunum. Simon Stacpoole/Getty Images

Samherjarnir Bruno Fernandes og Casemiro enduðu 1-0 sigur Manchester United á Aston Villa um helgina með léttum rökræðum út á velli áður en þeir fögnuðu með samherjum sínum. 

Þetta er eitthvað sem Erik ten Hag, þjálfari liðsins, hefur beðið leikmenn sína að gera frekar en að byrgja slíkar skoðanir inni.

Man United vann á laugardag gríðarlega mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu. Fernandeds skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins en hann missti boltann undir lok leiks og það var Casemiro ósáttur með. Þá hafði Jadon Sancho sagt Fernandes að hætta að væla á meðan leik stóð.

Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Fernandes og Casemiro hafa „rætt saman“ eftir leik. Casemiro var til að mynda ekki sáttur með Fernandes í 2-0 sigri Man United á Newcastle United í úrslitum deildarbikarsins. Casemiro fannst að Fernandes hefði átt að gefa á Sancho undir lok leiks.

Ástæðan að þessu sinni var sú að í blálok leiksins reyndi Fernandes að sóla leikmenn Villa frekar en að koma boltanum upp í horn. Fernandes tapaði boltanum, Villa fór í sókn sem endaði með því að liðið fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig.

Eftir rökræðurnar þá knúsuðust þeir félagar og fögnuðu sigrinum með stuðningsfólki Man United. Erik ten Hag var spurður út í þetta, hann sagðist einfaldlega hvetja leikmenn sína til að ræða svona hluti inn á vellinum frekar en að byrgja þetta inni og orsaka þannig frekari pirring.

Þó Fernandes hafi byrjað leikinn gegn Villa á hægri vængnum þá hefur Man United ekki enn tapað leik þar sem Fernandes, Casemiro og Christian Eriksen byrja allir. Vonast stuðningsfólk liðsins til að sú tölfræði lifi út tímabilið þar sem Man United þarf enn á sigrum að halda ætli það sér að spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×