Í fyrri umferð kynntumst við flytjendunum sex og heyrðum brot úr fyrstu útgáfum laga þeirra. Nú hefur hópurinn haft góðan tíma til að fínpússa bæði lögin og gera ýmsar breytingar á þeim.
Lilja Sól er síðasti flytjandinn í seinni umferð. Hún fór heldur betur ótroðnar slóðir með útsetningu sína en Lilja Sól gerði útsetningu fyrir stórsveit. „Í lokaútgáfunni leitað ég eftir meiri fyllingu svo öll hljóðfærin myndu nýtast til fulls. Svo hraðaði ég oggulítið útsetningunni og tók lagið upp með alvöru stórsveit. Upptakan gekk bara mjög vel og öllum fannst þetta bara fyndið.“
Í fyrri þætti minntist dómnefndin á að lítið heyrðist í söngnum. „Ég fékk því eftirsóttasta söngvarann í lið með mér, sjálfan Kjalar Martinsson Kollmar, sem lenti í öðru sæti í Idol nýlega og bað hann að syngja með mér. Við erum saman í djass-sögu í Menntaskóli í tónlist og hann tók vel í það.“
Lilja Sól stefnir á útgáfu plötu í haust. „Ég ætla að vinna að henni í sumar og stefni á útgáfu á haustmánuðum. Lagið Mjólkin, sem er frumsamda lagið mitt í Skúrnum, verður þar ásamt fleiri rólegri lögum. Það verður spilað mikið á saxófón og klarínett og svo verður líka mikið af raftónlistarheimi.“
Þetta var lokaþáttur seinni umferðar. Lesendur Vísis og dómnefnd velja þrjú SS pylsulög áfram og velja besta frumsamda lagið.
Kosning hefst á Vísi fimmtudaginn 11. maí.
Landsmenn munu heyra útgáfurnar þrjár sem komast í lokaúrslit í sjónvarpi og útvarpi í sumar og í ágúst verður kosið um sigurvegarann í keppninni um besta nýja SS pylsulagið.