Gangi spá bankans eftir muni tólf mánaða verðbólga hjaðna úr 9,5 prósentum í 8,7 prósent. Verðbólgan hefur ekki mælst undir níu prósentum síðan í júní í fyrra. Í þeim mánuði hækkaði vísitala neysluverðs talsvert, um 1,4 prósent. Þar sem sá mánuður dettur út úr tólf mánaða mælingu á næstunni þá mun hjöðnun ársverðbólgunnar vera talsverð.
Þá spáir bankinn því einnig að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,7 prósent í júní frá fyrri mánuði. Það sem skýri mánaðarhækkunina sé að mestu hækkun á húsnæðisliðnum auk þess sem matvörur og flugfargjöld hækka í verði.
Í spánni er því jafnframt spáð að verðbólgutoppnum hafi verið náð í febrúar og verðbólgan haldi áfram að hjaðna. Næstu mánuði hjaðni hún frekar hratt en svo hægar þegar líða tekur árið.
Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs fyrir mánuðinn þann 28. júní næstkomandi.
Íbúðaverð hækkar hægar
Síðustu mánuði hafi íbúðamarkaður haft mikil áhrif á hækkun vísitölunnar. Íbúðaverð hafi farið aftur á flug auk þess sem vaxtaþátturinn hélt áfram að vega til hækkunar.
Á síðustu þremur mánuðum hefur íbúðaverð hækkað um 2,5 prósent. Mánuðina þar á undan hafði verð lækkað lítillega. Mæling Hagstofunnar byggir á þriggja mánaða meðaltali og virðist hafa verið mikil hreyfing á íbúðamarkaði í marsmánuði, fjöldi kaupsamninga og velta á markaðinum bendi einnig til þess.
Samkvæmt mælingu bankans á íbúðaverði mun íbúðaverð hækka talsvert hægar í júnímánuði en síðustu mánuði.
Bankinn spáir því að reiknaða húsaleigan hækki um eitt prósent á milli mánaða þar sem markaðsverð íbúðarhúsnæðis hækki um 0,3 prósent og vaxtaþáttur vegi til 0,7 prósent hækkunar á liðnum.
Flugfargjöld vegi þyngst á eftir húsnæði
Það sem vegur þyngst til hækkunar í júní er, að húsnæðisliðnum undanskildum, liðurinn ferðir og flutningar. Það sem skýri það að mestu leyti sé hækkun á flugfargjöldum um 7,3 prósent en um árstíðarbundna hækkun er að ræða.
Í mælingu bankans stendur eldsneytis- og bílaverð í stað á milli mánaða.
Matar- og drykkjarvörur hækka hægar í mánuðinum en undanfarna mánuði samkvæmt spánni, bankinn spáir 0,65 prósent hækkun á milli mánaða. Það yrði minnsta hækkun á liðnum frá því í september á síðasta ári. Matvöruverð hefur hækkað verulega undanfarið, um 7 prósentum frá áramótum.
Í spánni segir að þetta gæti verið merki um að von sé á hægari hækkun á matvörum framundan. Sú þróun sjáist víða erlendis og muni að öðru óbreyttu skila sér hingað til lands.
Aðrir helstu liðir sem hækka á milli mánaða í júní eru hótel og veitingastaðir sem hækka um 1,3 prósent, föt og skór sem hækka um eitt prósent og loks húsgögn og heimilisbúnaður sem hækkar um 0,6 prósent.
Útlitið bjart en óralangt í verðbólgumarkmið
Bankinn segir að ársverðbólga hafi loksins hjaðnað í maí þegar hún mældist 9,5 prósent.
Bankinn spáir áframhaldandi hjöðnun verðbólgunnar næsta kastið, 0,3 prósent hækkun vísitölu neysluverðs í júlí, 0,3 prósent í ágúst og 0,4 prósent í september.
Gangi spá bankans eftir muni ársverðbólga mælast 8,1 prósent í september. Það sé hins vegar enn langur vegur til verðbólgumarkmiða Seðlabankans sem spá Íslandsbanka segir að sé í órafjarlægð.