Enski boltinn

Vilja byggja liðið í kringum unga og hungraða leik­menn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Enzo Fernández er einn þeirra leikmanna sem Chelsea vill byggja í kringum.
Enzo Fernández er einn þeirra leikmanna sem Chelsea vill byggja í kringum. Robin Jones/Getty Images

Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur undanfarnar vikur losað hvern leikmanninn á fætur öðrum. Virðist skipta litlu máli hvert þeir fara og í sumum tilvikum fá þeir jafnvel að fara frítt. Stóra spurningin er af hverju og hvað er Chelsea að pæla?

Vísir greindi nýverið frá umræðunni í kringum Sádi-Arabíu og Chelsea en sem stendur virðist það vinsælasti áfangastaður þeirra leikmanna sem félagið vill losna við. Aðrir eru svo á leiðinni til Arsenal, Manchester City og Inter Mílanó.

Það er vitað að Chelsea þurfti að losa leikmenn fyrir 30. júní til að lenda ekki í vandræðum með reglur Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, um fjárhagslega háttvísi (FFP). Það kom samt sem áður á óvart að sjá félagið losa jafn marga leikmenn og raun ber vitni. Að því sögðu þá virðist ákveðin hugmyndafræði að baki ákvörðun félagsins.

Eftir að sjá leikmenn svo gott sem leggja árar í bát á síðustu leiktíð þá var vitað að það þyrfti að taka til og sparka í rassinn á mönnum. Mauricio Pochettino var ráðinn til félagsins í þeirri von um að hann geti lyft félaginu á þann stall sem það vill vera.

Pochettino mun stýra Chelsea á næstu leiktíð.David Ramos/Getty Images

Eftir að hafa þurft að glíma við þreyttur ofurstjörnur í París þá vill Pochettino fara aftur í þau gildi sem gerðu hann að einum mest spennandi stjóra Evrópu þegar hann var með Southampton og síðar Tottenham Hotspur. Pochettino vill ungan, hungraðan og drifinn leikmannahóp. Þeir leikmenn sem Chelsea er að losa eru að undanskildum Kai Havertz allir nær þrítugu en tvítugu ásamt því að þeir eru allir á himináum launum.

Segja má að núverandi hugmyndafræði hafi byrjað í janúar á þessu ári þegar hinn 31 árs gamli Jorginho var seldur til Arsenal. Þeirri hugmyndafræði hefur verið fylgt eftir í sumar með því að selja Mateo Kovačić (29 ára) og leyfa bæði N‘Golo Kante (32 ára) ásamt fyrirliðanum César Azpilicueta (33 ára) að fara frítt.

Hakim Ziyech (30 ára), Édouard Mendy (31 árs) og Kalidou Koulibaly (32 ára) eru allir á leið frá félaginu ásamt því að Romelu Lukaku (30 ára) og Pierre-Emerick Aubameyang (34 ára) eiga ekki mikla framtíð fyrir sér.

Hvað Havertz – sem er á leið til Arsenal - varðar þá er hann talinn vera með 300 þúsund pund (52 milljónir íslenskra króna) í vikulaun og því til sölu fyrir rétt verð. Bandaríkjamaðurinn Christian Pulisic (24 ára) er einnig á himinháum launum ásamt því að hafa ekki staðið undir væntingum svo hann er sömuleiðis til sölu.

Markmið Chelsea er sum sé að byggja liðið upp á ungum leikmönnum sem vilja enn sanna sig. Í grein The Athletic um málið eru þeir Enzo Fernández og Mykhailo Mudryk nefndir til sögunnar en þó þeir hafi kostað drjúgan skilding eru þeir aðeins með einn þriðja af vikulaunum Havertz.

Þetta útskýrir einnig af hverju félagið hefur ekki samþykkt tilboð Manchester United í Mason Mount en sá er aðeins 24 ára gamall og ekki á sama samning og Havertz. Það breytir því ekki að ef Chelsea selur hann ekki í sumar þá getur hann farið frítt næsta sumar.


Tengdar fréttir

Nkunku orðinn leik­maður Chelsea

Franski framherjinn Christopher Nkunku er orðinn leikmaður Chelsea. Kemur hann frá þýska félaginu RB Leipzig og kostar 52 milljónir punda [rúma 9 milljarða íslenskra króna].




Fleiri fréttir

Sjá meira


×