Lokaumferðin er hafin - Leitin að besta SS pylsulaginu SS 27. júní 2023 10:21 Lokaumferðin er hafin í Skúrnum. Þrír flytjendur keppa um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu. Taktu þátt og kjóstu á Vísi. Nú geta lesendur Vísis valið besta nýja SS pylsulagið. Undanúrslitin í Skúrnum voru tilkynnt í lok maí þar sem lesendur Vísis og þriggja manna dómnefnd völdu Gunnar & Benedikt, Sprite Zero Klan og Sæborg áfram í keppninni um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu. Sex flytjendur voru valdir í vor úr stórum hópi umsækjenda til að taka þátt í keppninni auk þess sem hópurinn keppti einnig um besta frumsamda lagið. Um leið og tilkynnt var um hvaða þrír flytjendur kæmust áfram var tilkynnt að Gígja Marín hefði unnið keppnina um besta frumsamda lagið sem ber heitið I know. Hér fyrir neðan er hægt að kjósa um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu. Fyrir neðan kosningagluggann má hlusta á nýju útgáfurnar þrjár. Gunnar og Benedikt Benedikt Gylfason og Gunnar Darri Bergvinsson segja þátttökuna í Skúrnum hafa verið virkilega skemmtilega. „Það var í fyrsta lagi mjög gaman að búa til nýja útgáfu af þessu ódauðlega lagi sem líklega allir Íslendingar þekkja og geta sungið með en líka af því það er eitthvað sem við hefðum aldrei gert nema út af þessari keppni.“ Þeir segjast aðeins hafa verið að fikta við að gera remix og meira frumsamið efni saman sem er komið mislangt og kemur kannski út á næstu mánuðum. Klippa: Skúrinn, seinni umferð - Gunnar og Benedikt flytja sína útgáfu af SS pylsulaginu Sprite Zero Klan Daníel Óskar Jóhannesson og Kolbeinn Sveinsson skipa dúettinn Sprite Zero Klan. „Í stuttu máli er þetta búið að vera mjög gaman,“ segja þeir félagar. „Við elskum slöngur, viljum hafa allt á þeim og sinnepið bæði undir og yfir. Við erum miklir SS menn svo þetta er búið að vera svolítið persónulegt.“ Þeir eru að gera tónlist á fullu í sumar og haustið verður eintóm veisla að þeirra sögn. „Mikið blót og mikið partý. Planið er að gefa hressilega út og halda þjóðinni á tánum. Taka svo endanlega yfir og einoka markaðinn.“ Klippa: Skúrinn, seinni umferð - Sprite Zero Klan flytur sína útgáfu af SS pylsulaginu Sæborg Sæborg eru skipuð Gísla Þór Brynjólfssyni, Kára Jóhannssyni og Pétri Gunnari Guðmundssyni. „Skúrinn hefur verið ótrúlega skemmtileg áskorun og kærkomin vítamínsprauta fyrir okkur í Sæborg,“ segja þeir félagar. „Það að við séum komnir alla leið hingað í úrslit er alveg hreint geggjað og viljum við þakka ykkur öllum aftur fyrir að hlusta og kjósa.“ Þeir segjast vera að vinna að sinni fyrstu plötu þessa dagana og því eru fleiri lög væntanleg á næstunni. „Næsta gigg verður á Fiskideginum mikla í ágúst og við munum svo spila meira í haust.“ Klippa: Skúrinn, seinni umferð - Sæborg flytur sína útgáfu af SS pylsulaginu Lögin þrjú sem komust áfram verða spiluð í útvarpi og sjónvarpi í sumar og munu lesendur Vísis kjósa á milli þeirra þriggja en kosningu lýkur í ágúst. Sigurvegarinn hlýtur að launum tvær milljónir króna, annað sætið hlýtur eina milljón og þriðja sætið fimm hundruð þúsund. Skúrinn er í samstarfi við SS. Skúrinn Tónlist Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? „Í fyrrakvöld bjargaði Tesla bifreið lífi mínu“ Sjá meira
Sex flytjendur voru valdir í vor úr stórum hópi umsækjenda til að taka þátt í keppninni auk þess sem hópurinn keppti einnig um besta frumsamda lagið. Um leið og tilkynnt var um hvaða þrír flytjendur kæmust áfram var tilkynnt að Gígja Marín hefði unnið keppnina um besta frumsamda lagið sem ber heitið I know. Hér fyrir neðan er hægt að kjósa um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu. Fyrir neðan kosningagluggann má hlusta á nýju útgáfurnar þrjár. Gunnar og Benedikt Benedikt Gylfason og Gunnar Darri Bergvinsson segja þátttökuna í Skúrnum hafa verið virkilega skemmtilega. „Það var í fyrsta lagi mjög gaman að búa til nýja útgáfu af þessu ódauðlega lagi sem líklega allir Íslendingar þekkja og geta sungið með en líka af því það er eitthvað sem við hefðum aldrei gert nema út af þessari keppni.“ Þeir segjast aðeins hafa verið að fikta við að gera remix og meira frumsamið efni saman sem er komið mislangt og kemur kannski út á næstu mánuðum. Klippa: Skúrinn, seinni umferð - Gunnar og Benedikt flytja sína útgáfu af SS pylsulaginu Sprite Zero Klan Daníel Óskar Jóhannesson og Kolbeinn Sveinsson skipa dúettinn Sprite Zero Klan. „Í stuttu máli er þetta búið að vera mjög gaman,“ segja þeir félagar. „Við elskum slöngur, viljum hafa allt á þeim og sinnepið bæði undir og yfir. Við erum miklir SS menn svo þetta er búið að vera svolítið persónulegt.“ Þeir eru að gera tónlist á fullu í sumar og haustið verður eintóm veisla að þeirra sögn. „Mikið blót og mikið partý. Planið er að gefa hressilega út og halda þjóðinni á tánum. Taka svo endanlega yfir og einoka markaðinn.“ Klippa: Skúrinn, seinni umferð - Sprite Zero Klan flytur sína útgáfu af SS pylsulaginu Sæborg Sæborg eru skipuð Gísla Þór Brynjólfssyni, Kára Jóhannssyni og Pétri Gunnari Guðmundssyni. „Skúrinn hefur verið ótrúlega skemmtileg áskorun og kærkomin vítamínsprauta fyrir okkur í Sæborg,“ segja þeir félagar. „Það að við séum komnir alla leið hingað í úrslit er alveg hreint geggjað og viljum við þakka ykkur öllum aftur fyrir að hlusta og kjósa.“ Þeir segjast vera að vinna að sinni fyrstu plötu þessa dagana og því eru fleiri lög væntanleg á næstunni. „Næsta gigg verður á Fiskideginum mikla í ágúst og við munum svo spila meira í haust.“ Klippa: Skúrinn, seinni umferð - Sæborg flytur sína útgáfu af SS pylsulaginu Lögin þrjú sem komust áfram verða spiluð í útvarpi og sjónvarpi í sumar og munu lesendur Vísis kjósa á milli þeirra þriggja en kosningu lýkur í ágúst. Sigurvegarinn hlýtur að launum tvær milljónir króna, annað sætið hlýtur eina milljón og þriðja sætið fimm hundruð þúsund. Skúrinn er í samstarfi við SS.
Sigurvegarinn hlýtur að launum tvær milljónir króna, annað sætið hlýtur eina milljón og þriðja sætið fimm hundruð þúsund.
Skúrinn Tónlist Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? „Í fyrrakvöld bjargaði Tesla bifreið lífi mínu“ Sjá meira