Innlent

Snarpur skjálfti reið yfir rétt fyrir tvö

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Upptök skjálftans vpru á kunnuglegum slóðum. 
Upptök skjálftans vpru á kunnuglegum slóðum.  Vísir

Snarpur skjálfti reið yfir rétt fyrir klukkan tvö í nótt og fannst á höfuðborgarsvæðinu.

Skjálftinn reið yfir um tíu mínútur í tvö og stóð lengi yfir. Hugsanlega var um nokkra skjálfta að ræða.

Skjálftinn mældist samkvæmt óyfirförnum mælingum Veðurstofunnar 3,3 að stærð og mældist skammt norðnorðaustan við Eldey á Reykjanesskaga.

Þá voru nokkrir smærri skjálftar fyrir og eftir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×