Sport

Dag­skráin í dag: Breiða­blik í Evrópu, Besta deild karla og Opna breska

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Breiðablik getur komist í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Breiðablik getur komist í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Það er sannarlega nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á Breiðablik í Meistaradeild Evrópu karla í knattspyrnu, Bestu deild karla í knattspyrnu, Opna breska meistaramótið í golfi og BLAST Premier.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.50 hefst útsending frá Meistaravöllum þar sem KR og FH mætast í Bestu deild karla. Eftir leik – kl. 22.00 – er Stúkan á dagskrá.

Stöð 2 Sport 4

Við hefjum leik snemma en klukkan 08.00 hefst bein útsending frá æfingasvæði Opna breska meistaramótsins í golfi. Þar verður fylgst með kylfingum hita upp fyrir keppni dagsins. Útsendingunni lýkur 10.00 en hefst aftur 13.00.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 19.00 hefst útsending frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik mætir Shamrock Rovers frá Írlandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Blikar leiða 1-0 eftir fyrri leikinn.

Stöð 2 E-Sport

Klukkan 12.30 hefst upphitun fyrir leiki dagsins í BLAST Premier-deildinni þar sem keppt er í tölvuleiknum CS:GO. Leikir dagsins eru klukkan 13.00 og 16.30.

Besta deildin

Klukkan 19.50 hefst bein útsending frá Árbænum þar sem Fylkir og HK mætast í Bestu deild karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×