Fótbolti

Manchester City tapaði fyrir Atlético Madrid

Hjörvar Ólafsson skrifar
Atlético Madrid og Manchester City mættust í Seúl í dag. 
Atlético Madrid og Manchester City mættust í Seúl í dag.  Vísir/Getty

Atlético Madrid bar sigur úr býtum með tveimur mörkum gege einu þegar liðið atti kappi við Manchester City í æfingaleik liðanna í Seúl í Suður-Kóreu í dag. 

Memphis Depay og Yannick Carrasco skoruðu mörk Atlético Madrid um miðbik seinni hálfleiks en báðir höfðu þeir nýverið komið inná sem varamenn fyrir spænska liðið. 

Rúben Dias minnkaði svo muninn fyrir Manchester City undir lok leisins en lengra komust hinir þreföldu meistarar frá síðustu leiktíð ekki og 2-1 sigur Madrídinga staðreynd. 

Manhester City hafði betur gegn Bayern München og Yo­kohama Mar­in­os í fyrstu tveimur leikjum sínum í æfinga- og keppnisferð sinni um Asíu.  

Næsti leikur Manchester City er svo rimman um Samfélagsskjöldinn við Arsenal en sá leikur fer fram um næstu helgi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×