Walthamstow FC er áhugamannalið í austurhluta Lundúna sem spilar í norðurhluta Isthmian-deildarinnar, sjöundu efstu deild á Bretlandi. Nýjar treyjur félagsins eru unnar í samstarfi við safnið William Morris Gallery sem er staðsett í gömlu heimili Morris-fjölskyldunnar í Walthamstow.
Heimavallar- og útileikjatreyjurnar eru báðar skreyttar með blómamynstrinu Yare sem var búið til árið 1892 af hönnuðinum John Henry Dearle sem vann fyrir Morris and Co.

Hönnun Dearle inniheldur laufblöð sem eru túrkís og græn að lit með litlum bláum, rauðum og gulum blómum á dökkum bakgrunni.
Listhópurinn Wood Street Walls sem er frá Walthamstow hefur unnið að hönnun treyjanna undanfarin þrjú ár. Hópurinn endurteiknaði munstrið á stafrænu formi áður en því var komið á treyjurnar sem breski íþróttavöruframleiðandinn Admiral framleiðir.
Heimavallartreyjurnar eru dökkbláar með fölbláum laufum og fölbleikum blómum á meðan útivallartreyjan er hvít endurgerð af Dearle-munstrinu með marglita blómum.
Að sögn Walthamstow FC mun allur ágóði af sölu treyjanna fara í að stofna kvennalið hjá félaginu.

Heillaðist af Íslandi
William Morris var lykilfígúra í Lista- og handverkshreyfingunni (e. Arts and Crafts Movement) og var stórtækur textílframleiðandi, hönnuður og skáld. Þekktastur var hann fyrir veggfóður sitt sem er enn vinsælt í dag.

Hann tók virkan þátt í stjórnmálum og var einn af stofnendum fyrirrennara breska Verkamannaflokksins.
Morris var mikill Íslandsvinur en hann ferðaðist tvisvar til landsins á starfsævi sinni, árið 1871 og árið 1873, og varð fyrir miklum áhrifum. Hann heillaðist bæði af menningu og náttúru.
Þá hafði Morris gríðarlegan áhuga á íslenskum bókmenntum og þýddi ásamt Eiríki Magnússyni margar Íslendingasögur yfir á ensku og endursagði í verkum sínum.
Morris hitti Eirík Magnússon árið 1868 og Eiríkur kenndi honum íslensku. Morris gaf síðan út Gunnlaugs sögu Ormstungu og Grettissögu út árið 1869 og Völsungasögu út árið 1870 á ensku.