„Leikir sem voru að detta með þeim í upphafi móts eru ekki að detta með þeim núna“ Smári Jökull Jónsson skrifar 17. ágúst 2023 07:00 Keflavík er í fallsæti Bestu deildar kvenna. Vísir/Anton Brink Lið Keflavíkur situr í fallsæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar hennar í Bestu mörkunum ræddu stöðu liðsins í þætti gærkvöldsins á Stöð 2 Sport.
Keflavík beið lægri hlut gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í Bestu deild kvenna í fyrrakvöld. Eftir tapið situr Keflavík í fallsæti Bestu deildarinnar, þremur stigum á eftir Eyjakonum. Helena Ólafsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir ræddu stöðu Keflavíkurliðsins í Bestu mörkunum í gærkvöldi. Helena sagðist hafa áhyggjur af liðinu. „Mér finnst þær hafa sýnt okkur leiki en svo finnst mér þær detta alveg svakalega niður á milli,“ sagði Helena og Harpa tók undir áhyggjur hennar. „Mér finnst þær ekki alveg hafa náð að fylgja eftir ágætis byrjun á mótinu. Leikir sem voru að detta með þeim í upphafi móts eru ekki að detta með þeim núna.“ Klippa: Bestu mörkin: Umfjöllun um Keflavík Keflavík hefur verið í baráttu í neðri hluta deildarinnar síðustu tvö tímabil og sama er uppi á teningunum þetta tímabilið. „Við erum að tala um gríðarlega breytt lið og nýjan þjálfara. Ég hef miklar mætur á (Jonathan) Glenn,“ sagði Harpa. „Mér finnst hann búinn að sýna það með ÍBV-liðið í fyrra og svo byrjar hann vel með Keflavík í ár,“ bætti Helena við en liðið missti einn sinn besta leikmann fyrir skömmu síðan þegar Linli Tu gekk til liðs við Breiðablik. Alla umræðu þeirra Helenu, Hörpu og Lilju Daggar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Íslenski boltinn Keflavík ÍF Besta deild kvenna Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn „Eigum skilið að finna til“ Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Handbolti Fleiri fréttir Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Mark Martinez lyfti Inter á toppinn „Eigum skilið að finna til“ Stefnir í alvöru titilbaráttu á Spáni Asensio hetjan í endurkomu Villa Þrenna Óla Vals í stórsigri Blika Magnaður Hákon tryggði Lille stigin þrjú Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Sjá meira