Lífið samstarf

Spri­te Zero Klan og Á­­sgeir Orri eiga bestu nýju út­­­gáfuna af SS pylsu­laginu

SS
Daníel Óskar Jóhannesson og Kolbeinn Sveinsson skipa dúettinn Sprite Zero Klan en þeir sigruðu keppnina um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu ásamt Ásgeiri Orra Ásgeirssyni.
Daníel Óskar Jóhannesson og Kolbeinn Sveinsson skipa dúettinn Sprite Zero Klan en þeir sigruðu keppnina um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu ásamt Ásgeiri Orra Ásgeirssyni.

Sprite Zero Klan stóðu uppi sem sigurvegarar í Skúrnum, keppninni um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu.

Það eru þeir Daníel Óskar Jóhannesson og Kolbeinn Sveinsson sem skipa dúettinn Sprite Zero Klan en þeir sömdu sigurútgáfuna ásamt Ásgeiri Orra Ásgeirssyni og fá þeir að launum tvær milljónir króna.

Klippa: Skúrinn, seinni umferð - Sprite Zero Klan flytur sína útgáfu af SS pylsulaginu

„Þetta er auðvitað sannur heiður. Við þökkum fyrst og fremst mæðrum okkar og mæðrum þeirra. Þetta pylsulag er í sjálfu sér tileinkað öllum mæðrum landsins," segja þeir Daníel og Kolbeinn og eru hæstánægðir með viðtökurnar sem lagið hefur fengið.

„Svo er búið að vera rosalega gaman að sjá hve vel landinn hefur tekið í lagið okkar. Gaman að fá að taka þátt og gefa af okkur, tja, eina eftirminnilegustu pylsuvísu 21. aldarinnar."

Dómnefnd og lesendur Vísis völdu fyrr í sumar þrjá flytjendur í lokaúrslitin en auk Sprite Zero Klan voru það Sæborg og dúettinn Gunnar og Benedikt sem komust í úrslit. Það var svo söngkonan Gígja Marín sem átti svo besta frumsamda lagið

Dúettinn Gunnar & Benedikt lentu í öðru sæti og fengu þeir eina milljón króna í verðlaun. Rokksveitin Sæborg hreppti svo þriðja sætið og fengu 500 þúsund krónur í verðlaun. Gígja Marín, sem átti besta frumsamda lagið, fékk eina milljón króna í verðlaun.

Um 130 lög bárust í keppnina í vor og voru sex ólík lög valin til að keppa um bestu nýju útgáfuna af SS pylsulaginu. Auk keppti hópurinn um besta frumsamda lagið.

Hér má hlusta á öll lögin í keppninni

SS vill þakka öllum þeim sem sendu inn lög kærlega fyrir þátttökuna. „Við hjá SS erum himinlifandi með Skúrinn, þátttökuna, fjölbreytileikann og gæðin í framlögum,“ segir Hafþór Úlfarsson, deildarstjóri í markaðsdeild SS. „Allt ferlið frá því að fara yfir allar þær fjölmörgu innsendingarnar á lögum, þættirnir og að fylgjast með fínpússun á úrslitalögunum hefur verið mjög skemmtileg. Það verður gaman að heyra sigurlagið spilast við SS pylsuauglýsingunni næstu misserin.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.