Bein útsending: Hringrás í byggingariðnaði Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2023 09:01 Ráðstefnan stendur milli klukkan 9:30 til 15:30. Iðnaðarsýningin Fjöldi styrkhafa Asks - mannvirkjarannsóknasjóðs munu kynna verkefni sín á CIRCON ráðstefnu sem haldin er í tengslum við Iðnaðarsýninguna í í Laugardalshöll sem stendur yfir þessa dagana.
Ráðstefnan ber heitið „Hringrás í byggingariðnaði: erum við tilbúin í stökkið?“ og stendur milli klukkan 9:30 og 15:30 í dag. Í tilkynningu segir að Askur hafi reynst mikilvægt hreyfiafl í iðnaðinum og séu verkefni sjóðsins til vitnis um þau tímamót sem byggingariðnaðurinn standi á varðandi vistvænar áherslur. „Hringrásarhagkerfið, endurnýting byggingarefna, notkun á vistvænum efnum og þær áherslur að finna leiðir til að vinna með efni í nærumhverfinu, koma sterkt fram í verkefnum Asksins sem eru sýnd á Iðnaðarsýningunni 2023.“ Hægt er að fylgjast með ráðstefnunni í spilaranum að neðan. Styrkþegar Asks sem sýna verkefni sín á Iðnaðarsýningunni eru: Narfi Þorsteinsson sýnir verkefni sitt Rúststeinar sem felst í rannsóknum á steypu úr byggingum sem sem verða rifnar niður. Annars vegar snýr verkefnið að því að framleiða Rúststeina og hlaða úr þeim skúlptúr og hins vegar að skoða frekari möguleika á endurnýtingu þeirra, sjá vefsíðuna Narfi Biobuilding er rannsókna og þróunarverkefni á hampi sem byggingarefni í hús. Hampur er vistvænt efni sem hægt er að rækta hérlendis, sjá vefsíðuna Biobuilding og nánar um verkefnið hér. Eyþór Rafn Þórhallsson hjá Háskólanum í Reykjavík stýrir rannsóknum á Bláþræði sem er efni út basalttrefjum sem getur leyst steypustyrkarjárn af hólmi og er mun umhverfisvænna, hann sýnir einnig rannsóknir á krosslímdum timbureiningum. Gústaf Adolf Hermannsson verkfræðingur sýnir sömuleiðis efnisprufur úr rannsókn á krosslímdum timbureiningum sem hann framkvæmdi í tengslum við M.Sc. lokaritgerð í byggingareðlisfræði frá Build deildinni (SBI) í Álaborgar Háskólanum í Danmörku. Anna María Bogadóttir sem er styrkhafi hjá Aski í verkefninu Híbýlaauður mun sýna klippu úr mynd sínni Jarðsetning, sjá vefsíðuna urbanistan.is/jardsetning. Jóhannes Loftsson sýnir uppfinningu á afar nettu loftræstikerfi, sjá vefsíðuna breatherventilation.com. Cubit Building Company sýnir byggingareiningu sem Aðalsteinn Snorrason arkitekt og Gautur Þorsteinsson verkfræðingur hafa þróað þannig að einfalt sé að setja saman einingar og taka í sundur einingar. Þannig verða hús hönnuð með tiliti til þess að hægt sé að byggja þau úr einingum, breyta þeim, endurnýta þau eða skapa þeim nýjan tilgang. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hjá Lendager á Íslandi sýnir teikningar sem hannaðar eru með hringrásarhugsun í huga, sjá vefsíðuna lendager.com. Steypusérfræðingar munu sýna rannsóknaraðferðir sýnar sem miða að því að gera steypu umhverfisvænni. Sigríður Ósk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri umhverfis- og gæðasviðs hjá Hornsteini, Ólafur Wallevik, prófessor hjá Háskólanum í Reykjavík og Kristján Friðrik Alexandersson hjá Gerosion, sýna aðferðir við rannsóknir á vistvænni steypu, sjá vefsíðurnar hornsteinn.is og gerosion.is. Tæknisetur mun leggja þeim til víðsjá til skoðunar á steypusýnum, sjá vefsíðuna taeknisetur.is. Rósa Dögg Þorsteinsdóttir sýnir vefsíðuna vistbok.is sem er vefsíða með upplýsingum um umhverfisvænar byggingarvörur. Ásgeir Valur Einarsson hjá Iðunni - fræðslusetri sem rannsakar loftþéttleikapróf bygginga hjá Aski verður í Byko básnum þar sem gefst kostur á að sjá hann framkvæma tilraunina, sjá vefsíðuna idan.is. HMS bauð einnig Kristínu Sigurðardóttur ásamt Birtu og Hrefnu hjá Stúdíó fléttu að sýna hluta af sýningu sinni sem ber heitið Íslenska glerið um nýtingu umfram efna frá framleiðslu steinullar á Íslandi, sjá vefsíðunastudiofletta.is HMS bauð einnig Skógræktinni, Skógræktarfélagi Íslands, Bændasamtökum Íslands, Trétækniráðgjöf ehf., Iðunni - fræðslusetri og Landbúnaðarháskóla Íslands að sýna prufur af íslensku timbri sem byggingarefni en hagnýting slíks efnis og frekari tilraunir eru hluti af verkefnum nokkurra styrkhafa hjá Aski., sjá vefsíðurnar skogur.is, skog.is, bondi.is, timbur.is,idan.is og lbhi.is.
Byggingariðnaður Umhverfismál Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira