Enski boltinn

Liverpool og Man.City bæði með augstað á varnarmanni West Ham

Hjörvar Ólafsson skrifar
Nayef Aguerd hefur vakið jákvæða athygli fyrir frammistöðua sína með félags- og landsliðum sínum. 
Nayef Aguerd hefur vakið jákvæða athygli fyrir frammistöðua sína með félags- og landsliðum sínum.  Vísir/Getty

Enskir fjölmiðlar telja að bæði Liverpool og Manchester City séu með marakkóska landsliðsmiðvörðinn Nayef Aguerd á radarnum hjá sér.  

Liðin hafa samkvæmt enskum miðlum bæði hug á því að bjóða í Aguerd næsta sumar. 

Aguerd gekk til liðs við West Ham United frá franska félaginu Rennes síðasta sumar og lék vel með Lundúnafélaginu á síðustu leiktið sem og spútníkliði Marokkó sem hafnaði í fjórða sæti á heimsmeistaramótinu í Katar árið 2022. 

West Ham United, sem vann Sambandsdeild Evrópu síðasta vor, hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á nýhöfnu tímabili en liðið hefur 10 stig eftir fjóra leiki. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×