Enski boltinn

Declan Rice meiddur í baki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Declan Rice var sárþjáður í leiknum á móti Tottenham Hotspur um helgina.
Declan Rice var sárþjáður í leiknum á móti Tottenham Hotspur um helgina. AP/David Cliff

Arsenal tapaði ekki aðeins tveimur stigum í nágrannaslagnum á móti Tottenham í gær heldur missti liðið líka lykilmann meiddan af velli.

Mikael Arteta þurfti að taka Declan Rice af velli í hálfleik og knattspyrnustjóri Arsenal hefur nú staðfest að enski landsliðsmaðurinn væri að glíma við bakmeiðsli.

„Hann er meiddur í baki. Honum leið mjög illa í leiknum og við urðum að taka hann af velli. Það er óvenjulegt fyrir leikmann eins og hann að fara af velli,“ sagði Mikael Arteta.

Rice bættist þar með í hóp með þeim Gabriel Martinelli og Leandro Trossard sem hafa líka farið á meiðslalistann á síðustu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×