Innlent

Leitað að ger­endum í líkams­á­rásar­máli

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Leit stóð yfir af meintum gerendum í líkamsárásarmáli klukkan fimm í morgun.
Leit stóð yfir af meintum gerendum í líkamsárásarmáli klukkan fimm í morgun. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk símtal rétt fyrir klukkan eitt í nótt þar sem maður sagðist hafa orðið fyrir líkamsárás. Þegar lögregla mætti á vettvang voru meintir gerendurnir farnir af vettvangi í bifreið.

Strax var farið í að leita að mönnunum og rannsókn málsins stóð enn yfir klukkan fimm í morgun.

Tvær tilkynningar bárust í nótt um grunsamlegar mannaferðir í miðbænum. Í öðru tilvikinu var talað um að viðkomandi væru að þvælast við bifreiðar. Lögregla kannaði málið, segir í yfirliti yfir verkefni næturinnar.

Lögregla hafði einnig afskipti af ölvuðum manni sem var með vandræði við hótel en þeim samskiptum lauk þannig að maðurinn gekk sína leið.

Einn var stöðvaður í umferðinni grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og þá barst ein tilkynning um „aðfinnsluvert“ aksturslag á Reykjanesbraut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×