Innlent

Lögregla óskar eftir að ná tali af manni

Lovísa Arnardóttir skrifar
Lögregla leitar mannsins á myndinni.
Lögregla leitar mannsins á myndinni.

Lögreglan leitar að manni og birtir mynd af honum. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manni vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Maðurinn er beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000. Maðurinn er á myndinni sem má sjá hér að ofan, og neðan. 

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að ef einhverjir þekki til mannsins, eða viti hvar hann er að finna, séu hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið: hildur.run@lrh.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×