Krabbameinsfélagið - samstaðan tryggir metnaðarfullt og fjölbreytt starf Krabbameinsfélagið 13. október 2023 08:32 Opnunarviðburður Bleiku slaufunnar fór fram í Þjóðleikhúsinu 28. september síðastliðinn. Að greinast með krabbamein er ein stærsta áskorunin í lífi fólks.
Í kringum hvern sem veikist má gera ráð fyrir að séu að minnsta kosti tíu aðstandendur og í ljósi þess að í dag eru á lífi um 17.500 einstaklingar sem fengið hafa krabbamein jafngildir það því að krabbamein séu í nánasta umhverfi hálfrar þjóðarinnar. Þá er ótalinn sá mikli fjöldi fólks sem hefur misst ástvini úr krabbameinum. Í októbermánuði ár hvert stendur Krabbameinsfélagið fyrir árvekni- og fjáröflunarátakinu Bleiku slaufunni til að vekja athygli á krabbameini hjá konum. Slaufan og bleikur október hefur að minnsta kosti þríþætta þýðingu í samfélaginu; þær konur sem hafa fengið krabbamein finna og sjá samstöðu og stuðning, fólk fær tækifæri til að styðja málstaðinn og leggja sitt af mörkum og Krabbameinsfélagið, sem er alfarið rekið fyrir styrki frá almenningi og fyrirtækjum, safnar fé. Í Bleiku slaufunni safnar félagið stórum hluta síns rekstrarfjármagns sem það nýtir til fjölbreyttrar starfsemi félagsins. Starfsemin miðar öll að því að fækka þeim sem veikjast af krabbameinum, að fjölga þeim sem lifa af og bæta líf þeirra sem veikjast og aðstandenda þeirra. Sambærilegt átak, Mottumars, fer fram í marsmánuði til að vekja athygli á krabbameini hjá karlmönnum. Krabbameinsfélagið er 72 ára og hefur frá upphafi beitt sér gegn krabbameinum með margvíslegum hætti. Þrátt fyrir miklar framfarir fer áskorununum ekki fækkandi. Á næstu árum mun krabbameinstilfellum hér á landi fjölga mjög mikið í takt við aukna fólksfjölgun og að þjóðin eldist og því er spáð að tilvikum fjölgi um 52% úr 1.854 tilvikum á ári í dag, í 2.800 tilvik árið 2040. Því fylgja stór og krefjandi verkefni fyrir samfélagið allt. Til að árangur verði eins góður og mögulegt er þarf bæði metnaðarfullar og fjölþættar aðgerðir. Til þess að takast á við óvininn þarf að þekkja hann Vísinda- og rannsóknarstarfsemi er nauðsynleg forsenda þess að árangur náist. Sérfræðingar Krabbameinsfélagsins vinna fjölda rannsókna, bæði innlendar og fjölþjóðlegar, sem margar byggja á krabbameinsskrá, sem félagið rekur fyrir embætti landlæknis. Skráin skapar þekkingu um orsakir og eðli krabbameina og er meðal annars grunnur að faraldsfræðirannsóknum hér á landi. Stofnun Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins var bylting í íslenskum krabbameinsrannsóknum þegar hann var stofnaður og úr honum hafa 47 íslenskar krabbameinsrannsóknir hlotið 455,5 milljónir í styrki. Vísindastarf, grunnrannsóknir, klínískar rannsóknir og faraldsfræðilegar rannsóknir eru forsenda framfara. Frá áttundu úthlutun úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins, 21. júní sl. Heildarupphæð styrkja var 71,1 milljónir króna og voru 12 verkefni styrkt. Þekkingu um krabbamein þarf að miðla út í samfélagið. Krabbamein snerta flesta í samfélaginu og mikilvægt er að fólk þekki einkenni, áhættuþætti, hvað hægt er að gera til að draga úr líkum á að fá krabbamein og hvað hægt er að gera til að bæta líðan sína og annarra í tengslum við krabbamein. Margir þættir spila inn í; mataræði, hreyfing, svefn, hugrænir og tilfinningalegir þættir og svo má lengi telja. Fræðslu- og forvarnarstarfsemi félagsins fer fram með fræðsluerindum, málþingum, ráðstefnum og námskeiðum auk þess sem fjölbreytt fræðsluefni er aðgengilegt á heimasíðum félagsins, samfélagsmiðlum og í margs konar útgefnu efni. Í Mottumars fyrr á árinu fengu vel valdar styttur í höfuðborginni borða sem til að minna karlmenn á að humma ekki fram af sér heilsuna, sem var inntak Mottumars. Fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra býður Krabbameinsfélagið ókeypis ráðgjöf og stuðning. Sjö fagaðilar; sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar og félagsráðgjafar (einn pólskumælandi) eru til taks fyrir fólk sem þarf að takast á við nýjar aðstæður og læra að lifa með afleiðingum veikinda og meðferðar til skemmri og lengri tíma. Sjálfboðaliðar sem hafa hlotið sérstaka þjálfun eru tilbúnir til að veita stuðning fólki í svipaðri stöðu. Félagið stendur einnig fyrir viðburðum sem einkennast af samhug, samkennd og samstöðu. Með hagsmunagæslu félagsins er meðal annars unnið að bættum aðstæðum og réttindum og að greining og meðferð sé eins og best gerist. Jenný Valdimarsdóttir og Þorri Snæbjörnsson úr ráðgjafa- og stuðningsteymi Krabbameinsfélagsins. Bleika slaufan og bleikur október er stór liður í starfi Krabbameinsfélagsins og baráttunni gegn krabbameinum hér á landi. Allur ágóði Bleiku slaufunnar rennur til fjölbreyttar starfsemi Krabbameinsfélagsins svo hægt sé að vera til staðar fyrir þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur, sinna öflugri fræðslu og forvörnum og stunda rannsóknir. Þannig næst betri árangur í baráttunni gegn krabbameinum. Bleika slaufan fæst í öllum helstu verslunum og í vefverslun Krabbameinsfélagsins. Nánari upplýsingar um starf Krabbameinsfélagsins má finna á www.krabb.is – www.bleikaslaufan.is – www.mottumars.is – www.karlaklefinn.is – www.styrkleikarnir.is
Skimun fyrir krabbameini Heilsa Mest lesið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga rifja upp gamla takta í Draumahöllinni Bíó og sjónvarp Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Fleiri fréttir Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Magnesíum kemur í mörgum mismunandi formum Jólaboð sem gleður og yljar á aðventunni Pantaðu sól og gleði með Úrval Útsýn Ritdómur: Gáskafull þeysireið Friðsemdar Ostaboxið frá EasyCheese hefur slegið í gegn Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans Ritdómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin Þriggja daga veisla með Skálmöld í Hörpu Hrá upplifun í einstakri náttúruperlu Hlúa að heilsunni í infrarauðum hita í skammdeginu Óléttan breytir viðhorfum til innihaldsefna Allt í búðinni í boði - gjafabréf frá Maí stórsniðug jólagjöf Sjá meira