Fótbolti

Casemiro bætist á meiðslalista Man.Utd

Hjörvar Ólafsson skrifar
Casemiro bar fyrirliðabandið hjá Brasilíu í leiknum þangað til hann fór útaf vegna meiðsla. 
Casemiro bar fyrirliðabandið hjá Brasilíu í leiknum þangað til hann fór útaf vegna meiðsla.  Vísir/Getty

Casemiro, miðvallarleikmaður Manchester United, varð fyrir ökklameiðslum þegar hann spilaði fyrir Brasilíu í 1-1 jafnftefli brasilíska liðsins gegn Venesúela í undankeppni HM 2026 í vikunni. 

Meiðaslalisti Manchester United er nokkuð langur en þar eru fyrir Luke Shaw, Lisandro Martinez og Aaron Wan-Bissaka sem búist er við að verði frá í lengri tíma. 

Raphael Varane, Sergio Reguilon og Tyrell Malacia eru svo að glíma við meiðsli til skamms tíma. 

Búist er við því að Casemiro verði fjarri góðu gamni þegar Brasilía mætir Úrúgvæ í næstu umferð í undankeppni heimsmeistaramótins. 

Manchester United mætir svo Sheffield United í næstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×