Enski boltinn

Úlfarnir náðu í stig gegn Newcastle

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Markaskorar Úlfanna fagna saman.
Markaskorar Úlfanna fagna saman. Matt McNulty/Getty Images

Wolves, Úlfarnir, gerðu 2-2 jafntefli við Newcastle United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Callum Wilson kom gestunum frá Norður-Englandi yfir um miðbik fyrri hálfleiks en Mario Lemina jafnaði eftir góðan sprett frá Pedro Neto sem þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla í síðari hálfleik.

Í blálok fyrri hálfleiks fengu gestirnir hræódýra vítaspyrnu sem Wilson skoraði af öryggi úr og Newcastle 2-1 yfir í hálfleik. Hwang Hee-Chan jafnaði metin þegar tuttugu mínútur lifðu leiks og þar við sat, lokatölur 2-2.

Newcastle er í 6. sæti með 17 stig að loknum 10 leikjum á meðan Úlfarnir eru í 12. sæti með 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×