Enski boltinn

„Ein okkar besta frammi­staða“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Góðir saman.
Góðir saman. Catherine Ivill/Getty Images

Þeir Erling Braut Håland og Bernardo Silva mættu saman í viðtal eftir sigur Englandsmeistara Manchester City á nágrönnum sínum í Manchester United. Þeir hrósuðu hvor öðrum sem og stuðningsfólki Man City.

„Frábært, magnaður sigur og leikurinn sjálfur var ótrúlegur eins og allir í liðinu, sérstaklega þessi,“ Håland og benti á samherja sinn hann ræddi við fjölmiðla eftir 3-0 sigur Manchester City á Old Trafford í dag. Håland skoraði tvö og lagði upp það þriðja en hefði auðveldlega getað skorað fleiri.

„Ég sá að Phil Foden var einn fyrir opnu marki svo það var frekar einfalt,“ sagði hann um stoðsendinguna.

„Þetta var ótrúleg varsla rétt fyrir hálfleik og hann (André Onana) varði einnig frábærlega með höfðinu í síðari hálfleik. Það er eins og það er, við unnum svo mér er sama,“ sagði sá norski um færin sem fóru forgörðum.

„Þetta var góður leikur fyrir okkur. Fyrir utan nokkra einfalda bolta sem við töpuðum þá gáfum við þeim ekki mörg færi á að sækja hratt. Fyrstu 30 mínúturnar í síðari hálfleik voru mjög góðar. Hvernig við pressuðum, það vantaði gegn Arsenal. Við vorum frábærir. Mikið hrós á stóra manninn,“ sagði Bernardo Silva.

„Þegar við komum á stað sem þessa, Anfield eða Old Trafford, þá vitum við hvað liðin vilja gera: Bíða eftir að við töpum boltanum og sækja hratt. Þetta snýst um uppspilið, að tapa boltanum ekki auðveldlega, stýra leiknum og fara hægt af stað á okkar vallarhelming. Eftir það þá snýst þetta um að komast í gegnum þá. Það er aldrei auðvelt að koma hingað og sækja sigur.“

„Þetta er án efa einn af okkar betri sigrum. Að vinna 3-0 á útivelli fyrir framan þetta stuðningsfólk. Ég held að þetta sé ein okkar besta frammistaða,“ sagði Silva að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×