Fótbolti

Al­fons og fé­lagar í Twente gerðu jafn­tefli

Dagur Lárusson skrifar
Alfons í leik með Twente.
Alfons í leik með Twente. Vísir/Getty

Alfons Sampsted og félagar í Twente gerðu jafntefli gegn Utrecht í hollensku deildinni í dag.

Fyrir leikinn var Twente í fjórða sæti deildarinnar með 25 stig á meðan mótherjar þeirra Utrecht voru í sextánda sætinu með átta stig.

Það var Utrecht sem náði forystunni í leiknum á 23. mínútu en þá skoraði Oscar Fraulo og staðan orðin 1-0. Það tók Twente þó ekki langan tíma að jafna metin því á 31. mínútu fengu þeir vítaspyrnu. Á punktinn steig Sam Steijn og skoraði hann og var staðan 1-1 í hálfleiknum.

Hvorugu liðinu tókst að skora í seinni hálfleiknum og voru lokatölur því 1-1 en Alfons Sampsted spilaði 62. mínútur í hægri bakverði Twente. Eftir leikinn er Twente enn í fjórða sætinu en núna með 26 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×