Fótbolti

Glódís spilaði allan leikinn í sigri á Wolfsburg

Dagur Lárusson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir. Vísir/Getty

Bayern Munchen og Wolfsburg mættust í þýsku kvenna knattspyrnunni í dag þar sem Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern, var auðvitað í byrjunarliðinu.

Þetta var sannkallaður toppslagur en fyrir leikinn var það ljóst að sigurliðið myndi fara á toppinn.

Það var Linda Dallmann sem kom Bayern yfir á 29. mínútu leiksins áður en að hún lagði upp seinna markið á 37. mínútu þegar Klara Buhl skoraði og var staðan 2-0 í hálfleik.

Wolfsburg náði að gera leikinn spennandi á 63. mínútu með marki frá Lindu Oberdorf en nær komst Wolfsburg þó ekki og sigur Bayern Munchen því staðreynd.

Glódís Perla spilaði allan leikinn í vörn Bayern sem er nú á toppi deildarinnar með fjórtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×