Klæðningarflokkur Borgarverks hóf lagningu bundins slitlags á veginn þann 5. september síðastliðinn. Þann dag voru 2,3 kílómetrar klæddir á kaflann næst nýju Þorkafjarðarbrúnni og að eyðibýlinu Gröf og síðan hafa áfangarnir bæst við hver af öðrum.
„Fyrra lag er núna komið á allan kaflann. Rúmlega þrír kílómetrar voru lagðir í gær og í fyrradag. Við eigum bara eftir seinna lag klæðingar á þessa þrjá kílómetra, komin tvö lög á allt hitt,“ segir Einar Örn Arnarson, sviðsstjóri klæðningar hjá Borgarverki.

Vegarkaflinn kallast í opinberum gögnum Vestfjarðavegur um Gufudalssveit milli Þórisstaða og Hallsteinsness. Verkið fólst í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 10,4 kílómetra kafla og 200 metra kafla Djúpadalsvegar. Áður var Norðurtak búið að leggja nýjan 5,7 kílómetra veg um austanverðan Djúpafjörð.
„Þá er komið bundið slitlag á allan Teigskóg og Djúpadalsveginn. Seinna lagið verður tekið næsta vor eða næsta sumar,“ segir Einar Örn.
„Það er verið er að ljúka við klæðingu í þessum töluðu orðum. Þá hefst allra síðasti lokafrágangurinn og mun Vegagerðin gefa út opnunardag þegar honum líkur,“ segir Atli Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Borgarverks.

„Já, það er komið slitlag alla leið. Hluti er einföld klæðning. Það verður farið í uppsetningu á vegriði eftir helgi,“ segir Sigurþór Guðmundsson, verkefnastjóri Vegagerðarinnar í Gufudalssveit.
„Það verður byrjað á vegriði í næstu viku, það tekur viku til tíu daga,“ segir Einar Örn hjá Borgarverki.
Gert er ráð fyrir að vegirnir um Teigsskóg og Djúpafjörð verði opnaðir samtímis. Með því færist Vestfjarðavegur af 336 metra háum Hjallahálsi og niður á láglendi en kaflinn inn Djúpafjörð, milli Hallsteinsness og Djúpadals, mun tímabundið gegna hlutverki Vestfjarðavegar.
„Ég get ekki sagt nákvæmlega til um opnun en við stefnum að því að það verði í þessum mánuði,“ segir Sigurþór hjá Vegagerðinni.

Daginn sem Þorskafjarðarbrúin var opnuð fyrir hálfum mánuði prófaði Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra nýja Teigsskógarveginn og lýsti þá reynslu sinni í frétt Stöðvar 2:
„Ég prófaði að fara þar í gegnum fyrr í dag og ég veit að það munu allir verða stoltir af þeirri framkvæmd og glaðir að fara þar í gegn,“ sagði ráðherrann í frétt þann daginn sem sjá má hér:
Hér má sjá frétt um stöðu verksins fyrir tveimur mánuðum:
Í síðasta mánuði fjallaði Stöð 2 um þá samgöngubyltingu sem framundan er á Vestfjörðum í frétt sem sjá má hér: