Innlent

Lög­reglu­stjórinn á Suður­nesjum setur fjöl­miðlum ó­tækar tak­markanir

Heimir Már Pétursson skrifar
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Vísir/Vilhelm

Formaður Blaðamannafélags Íslands segir víðtækar takmarkanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum á störf fjölmiðla í og í kringum Grindavík ótækar. Fjölmiðlar væru hindraðir í að hafa eftirlit með aðgerðum yfirvalda og til að afla upplýsinga sem vörðuðu Grindvíkinga og allan almenning í landinu.

Almannavarnir og lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafa sett víðtækar takmarkanir á ferðir fjölmiðla um hættusvæðið í og við Grindavík og ná þær takmarkanir almennt langt út fyrir hið skilgreinda hættusvæði. Þessar takmarkanir hafa hindrað störf fjölmiðla við öflun upplýsinga um stöðu mála hverju sinni.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands segir takmarkanir á störf fjölmiðla í og við Grindavík allt of víðtækar.Stöð 2/Arnar

Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands segir félagið og ritstjóra einstakra fjölmiðla árangurslaust hafa reynt að fá yfirvöld til að skilja stöðu og hlutverk fjölmiðla í þessum aðstæðum.

„Þetta er algerlega óásættanlegt að okkar mati og mikil takmörkun á starfi og aðgengi fjölmiðla að þessu svæði,“ segir Sigríður Dögg.

Ekki dugi að skammta einum ljósmyndara eða einum kvikmyndatökumanni stuttan tíma daglega fyrir hönd allra fjölmiðla í heiminum án þess að blaða- og fréttamenn fái að vera með í för. Yfirleitt væri um að ræða alvant fjölmiðlafólk í fréttaöflun á hamfarasvæðum. 

Ein af ástæðum lögreglustjórans við takmörkun á fjölmiðla er að ekki væri til reiðu nógu margt björgunarsveitarfólk til að fylgja fréttamönnum á svæðið.Stöð 2/Arnar

Þá væru dæmi um að fulltrúar yfirvalda ætluðu eftir á að banna birtingu á tilteknu efni sem væri ótækt. Verið væri að kanna mögleika á að kæra takmarkanirnar.

„Við erum þegar komin með lögmann til að skoða þetta mál og erum að kanna hvort við getum leitað þeirra leiða. En það er bara mjög erfitt þegar búið er að lýsa yfir neyðarástandi. Þá hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum svo miklar heimildir,“ segir formaður Blaðamannafélagsins.

Þegar lögreglustjórinn á Suðurnesjum setti ótímabundið bann við ferðum barna að gosstöðvunum við Meradali í fyrra komst umboðsmaður Alþingis að þeirri niðurstöðu að lögreglustjórinn hefði farið út fyrir valdmörk hans. Minnti umboðsmaður á að íþyngjandi ráðstafanir stjórnvalda yrðu almennt að eiga sér stoð í lögum. Þegar þær skertu grundvallarréttindi sem varin væru af stjórnarskrá og mannréttindum bæri að gera ríkari kröfu en ella til skýrleika lagaheimildar. Ekki mætti ganga lengra en þörf væri hverju sinni til að af­stýra hættu.

Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum hefur nánast bannað fjölmiðlum að fara inn á skilgreint hættusvæði sem auk þess er mjög víðfemt. Stöð 2/Bladur Hrafnkell

Fjölmiðlar hafa ríkan stjórnarskrárvarinn rétt til athafna og birtingu frétta. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir fjölmiðla hefur athafnafrelsi þeirra verið skert mikið og í dag benda Almannavarnir og lögreglustjórinn hvor á annan í þeim efnum. Sigríður Dögg segir fjölmiðla vera augu og eyru Grindvíkinga og alls almennings.

„Grindvíkingar sjálfir fá ekki að fylgjast með framkvæmd á þessu aðgerðum, eigna- og björgunaraðgerðum. Við höfum heyrt mikla gagnrýni á hversu miklu meiri tíma fyrirtækjaeigendur fá til að bjarga sínum eignum en íbúar. Svo hefur almenningur líka verið að spyrja spurninga varðandi framkvæmd á þessum varnargörðum. Og ef við erum ekki á svæðinu til að fylgjast með og spyrja spurninga fyrir hönd almennings þá hefur enginn það tækifæri,“ segir Sigríður Dögg Auðunsdóttir.


Tengdar fréttir

Víðtæk lokun hindrar för um stóran hluta Reykjanesskaga

Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×