Áður hafði Vísir fengið staðfest hjá Páli Winkel, fangelsismálastjóra að lögregla væri stödd í Litla-Hrauni vegna atviks sem þar átti sér stað fyrr í dag.
„Ég get ekki tjáð mig um þetta strax. Lögregla er á vettvangi vegna atviks á Litla-Hrauni sem er verið að bregðast við. En við getum ekki gefið upp frekari upplýsingar,“ sagði Páll Winkel fangelsismálastjóri fyrr í dag.
Hann segir að ákveðið ferli eigi sér stað innan veggja fangelsisins þegar slíkar árásir verði. Föngum sé boðin þjónusta sálfræðinga og öflug félagastuðning.
Rannsókn á frumstigi
Jón Gunnar Þórólfsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurlandi, sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að um líkamsárás hafi verið að ræða og einn hafi verið fluttur á spítala. Hann búi ekki yfir upplýsingum um líðan hans.
Hann sagði að tilkynning verði send út vegna málsins síðar í dag og að hann geti ekki tjáð sig um atvikið að öðru leyti en að það hafi átt sér stað á milli 13 og 14 í dag.
Í tilkynningu á vef lögreglu segir að lögreglu hafi borist tilkynning um að fangi hefði orðið fyrir alvarlegri líkamsárás á Litla-Hrauni. Var sá sem fyrir árásinni varð fluttur með sjúkrabíl á spítala. Þá segir lögregla að rannsókn málsins sé á frumstigi og að frekari upplýsingar verði ekki veittar að sinni.
Fréttin hefur verið uppfærð með tilkynningu lögreglu og ummælum fangelsistjóra um verklag innan fangelsis.