Liver­pool bjargaði stigi í toppslagnum

Siggeir Ævarsson skrifar
Markaskorarinn Trent Alexander-Arnold sussar á stuðningsmenn Manchester City á  Etihad leikvanginum
Markaskorarinn Trent Alexander-Arnold sussar á stuðningsmenn Manchester City á Etihad leikvanginum Vísir/Getty

Stór­leik Manchester City og Liver­pool í ensku úr­vals­deildinni lauk með 1-1 jafntefli. Áfram munar því einu stigi á toppliðunum en Arsenal getur skotið sér á toppinn með sigri gegn Brentford í dag.

Markavélin Erling Håland kom heimamönnum yfir með marki á 27. mínútu. Var þetta 50. mark Håland 48 leikjum í ensku úrvalsdeildinni en enginn leikmaður hefur verið jafn snöggur að rjúfa 50 marka múrinn.

City voru mun meira með boltann en Liverpool vörðust vel og náðu að skapa sér nokkur ágæt færi. Þolinmæði þeirra bar árangur á 80. mínútu þegar varnarmaðurinn Trent Alexander-Arnold skoraði gullfallegt mark úr þröngu færi rétt fyrir innan vítateigslínuna.

Fleiri urðu mörkin ekki en Håland fékk þó sannkallað dauðafæri eftir hornspyrnu á 98. mínútu en hitti boltann illa, fékk hann hálfpartinn í hnakkann, og hann sigldi framhjá stönginni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira