Fótbolti

Klopp þurfti að stilla til friðar milli Darwin Nu­nez og Guar­diola

Siggeir Ævarsson skrifar
Jurgen Klopp dregur Darwin Nunez í burtu eftir orðaskipti hans og Pep Guardiola
Jurgen Klopp dregur Darwin Nunez í burtu eftir orðaskipti hans og Pep Guardiola Vísir/Getty

Áhugavert atvik átti sér stað eftir leik Manchester City og Liverpool í dag þar sem framherjinn Darwin Nunez virtist eiga eitthvað ósagt við Pep Guardiola, stjóra Manchester City.

Hvað nákvæmlega fór þeirra Nunez og Guardiola á milli er óljóst. Leikmenn beggja liða voru að takast í hendur eftir leik þegar Nunez gekk að Guardiola, benti á höfuðið á sér og glotti.

Guardiola virtist vera brugðið og varð mjög æstur en þjálfarar Liverpool gengu hratt og örugglega á milli og skyldu kappana að. Jurgen Klopp var snöggur að ganga á milli og dró Nunez í burtu með hraði og virtist jafnframt glotta hressilega við tönn.

Netverjar á miðlinum sem eitt sitt hét Twitter hafa verið duglegir við að hvað var sagt í þessum orðaskiptum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×