Innlent

Keyrði á 112 km/klst á 50-götu

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
ÞrMaðurinn var umsvifalaust sviptur ökuréttindum.
ÞrMaðurinn var umsvifalaust sviptur ökuréttindum. vísir/vilhelm

Ökumaður var í dag stöðvaður á 112 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 km/klst. Var hann handtekinn, sviptur ökuréttindum og færður til blóðsýnatöku.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Reyndist hann undir áhrifum áfengis en aksturin átti sér stað á því svæði sem telst innan lögreglustöðvar 1, það er miðbæ og vesturbæ Reykjavíkur og Seltjarnarnes.

Tveir ökumenn til viðbótar voru handteknir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna eða áfengis og færðir til blóðsýnatöku, annar í Reykjavík og hinn í Hafnarfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×