Enski boltinn

Keane trúði ekki sínum eigin augum þegar hann sá ömur­legan árangur United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mynd sem er kannski lýsandi fyrir ástandið hjá Manchester United.
Mynd sem er kannski lýsandi fyrir ástandið hjá Manchester United. getty/Stu Forster

Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, trúði ekki eigin augum þegar hann sá skelfilegan árangur liðsins undir stjórn Eriks ten Hag á útivelli gegn sterkustu liðum ensku úrvalsdeildarinnar.

United tapaði fyrir Newcastle United, 1-0, á St James' Park á laugardagskvöldið. Anthony Gordon skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks.

Úrslitin voru í takt við slakan útivallarárangur United gegn sterkum liðum undir stjórn Ten Hags. Frá því Hollendingurinn tók við United hefur liðið tapað tíu af ellefu leikjum sínum á útivelli gegn liðum í efstu níu sætum ensku úrvalsdeildarinnar og gert eitt jafntefli.

„Er þetta satt? Þetta er ljótt,“ sagði Keane þegar hann sá skilti með þessum slæma árangri United.

„Fjöldi marka sem þeir hafa fengið á sig. Sex gegn Manchester City, sjö gegn Liverpool, fjögur gegn Brentford. Þetta er ekki gott. Þeir eru á erfiðum stað. Stjórinn er undir pressu.“

Keane skilur ekki af hverju United er enn að nota sömu leikmenn og síðustu ár.

„Það voru leikmenn sem spiluðu fyrir United í gær (í fyrradag) sem þú hélst að myndu kannski fara frá félaginu í sumar. Þú notar enn sömu leikmenn og hafa ekki farið með United neitt síðustu ár,“ sagði Keane.

„Hvað er merki um brjálæði? Að gera sama hlutinn aftur og aftur og búast við betri niðurstöðum. Þessi hópur breytist ekki. Ef þeir leggja ekki jafn hart að sér og andstæðingurinn eru þeir í vandræðum og þeir gera það ekki.“

United er í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 24 stig. Næsti leikur liðsins er gegn Chelsea á Old Trafford á miðvikudaginn.


Tengdar fréttir

„Það versta sem hægt er að segja um hann“

Jamie Carragher, sérfræðingur Sky Sports, sagði frammistöðu enska framherjans Marcus Rashford hafa verið algjörlega óásættanlega í tapi Manchester United gegn Newcastle um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×