Enski boltinn

Dag­ný hrósar West Ham fyrir stuðninginn í ó­léttunni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir, atvinnu- og landsliðskona í fótbolta.
Dagný Brynjarsdóttir, atvinnu- og landsliðskona í fótbolta. Vísir/Getty

Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona Íslands og fyrirliði West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, hefur hrósað félagi sínu fyrir stuðninginn en hún er sem stendur ólétt af sínu öðru barni. 

Dagný veltir hins vegar fyrir sér hvort allir leikmenn deildarinnar fái viðlíka stuðning og hún fær hjá West Ham.

„Ég ætla ekki að ljúga, ég er ekki beint frábær í að vera ólétt,“ sagði Dagný í viðtali við talkSPORT.

„Sem íþróttakona er erfitt að vera vön því að geta stjórnað líkama sínum en svo allt í einu getur þú það ekki. Ég fæ enn morgunógleði, þó ég sé á síðasta þriðjungi óléttunnar. Æli nánast daglega svo það er ákveðin brekka.“

„En ég veit að þetta er tímabundið og við enda ganganna eru mögnuð verðlaun svo þetta mun allt vera þess virði.“

Aðspurð hversu mikilvægur stuðningur West Ham væri á tímum sem þessum þá sagði hún að sveigjanleiki félagsins væri algjört lykilatriði.

„Þegar þú ert ólétt þá færðu augljóslega öðruvísi hlutverk í liðinu. Hormónin eru svo út um allt, það er mikið af tilfinningum í gangi svo það er mikilvægt að félagði styðji vel við bakið á þér.“

„Ég reyni að mæta alla daga en stundum get ég það hreinlega ekki því ég er veik. Félagið tekur því en annars er ég með liðinu á æfingum nærri daglega. Ég fer ekki með í útileikina en ég er á öllum heimaleikjum, hef aðeins misst af einum á þessari leiktíð vegna veikinda svo ég varð að horfa í sjónvarpinu.“

„Að finna fyrir stuðningnum frá West Ham á meðan óléttunni stendur og vitandi að félagið er þarna fyrir mig eftir fæðinguna, það skiptir miklu máli.“

Samkvæmt regluverki ensku úrvalsdeildarinnar eiga óléttir leikmenn aðeins rétt á 14 vikum á fullum launum. Það regluverk er tiltölulega nýtt en það var aðeins í september á síðasta ári sem Toni Duggan, leikmaður Everton, varð fyrsti kvenkynsleikmaður Englands til að fá laun sín borguð meðan hún var ólétt.

Fram að því höfðu félögin ákveðið sjálf hvort þau greiddu leikmönnum laun eður ei. Nú eru lið skyldug til að borga 14 vikna laun en mega borga meira ef sá gállinn er á þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×