Innlent

Vega­gerðin tekur við rekstri Sæ­vars

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hríseyjarferjan Sævar.
Hríseyjarferjan Sævar. Vísir

Vegagerðin mun sjá um rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars frá og með 1. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.

Þar kemur fram að undanfarin ár hafi fyrirtækið Andey ehf. sinnt siglingunum fyrir hönd Vegagerðarinnar. Ferjusiglingarnar verða nú reknar undir nafni Almenningssamgangna ehf. en félagið er alfarið í eigu Vegagerðarinnar.

Þá segir í tilkynningunni að öllum áhafnarmeðlimum ferjunnar hafi verið boðið að halda störfum sínum áfram og hefur nú verið samið við áhöfn um áframhaldandi vinnu um boð. Siglingaáætlun ferjunnar verður óbreytt frá því sem verið hefur.

Unnið að því að setja upp bókunarkerfi

Mun ferjan sigla allt að níu ferðir á dag en heimahöfn ferjunnar er í Hrísey. Fyrirkomulag miðasölu verður fyrst um sinn með sama hætti og áður, miðar verða seldir um borð í ferjunni.

Unnið er að því að setja upp bókunarkerfi þar sem hægt verður að bóka ferðir fram í tímann. Þegar það er tilbúið verður hægt að bóka ferðir á heimasíðu Vegagerðarinnar svipað og er í boði í dag fyrir ferjuna til Grímseyjar.

Á heimasíðu Vegagerðarinnar verða birtar helstu upplýsingar á borð við áætlun ferjunnar, verðskrá og fleira.

Almenningssamgöngur ehf. reka einnig Grímseyjarferjuna Sæfara sem siglir frá Dalvík til Grímseyjar auk þess að sigla til Hríseyjar tvisvar í viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×