Yfirvöld í Rússlandi hafa ekkert sagt um sprengjuvélarnar en rússneskir herbloggarar hafa sagt að minnsta kosti ein hafi verið skotin niður.
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, tilkynnti í dag að verið væri að undirbúa flutning átján F-16 orrustuþota til Úkraínu. Hvenær þoturnar berast til Úkraínu liggur ekki fyrir en Hollendingar voru fyrstir til að senda eins herþotur til Rúmeníu, þar sem úkraínskir flugmenn hafa verið þjálfaðir í að fljúga þeim.
Flugher Úkraínu tilkynnti í morgun að rúsnesku sprengjuvélarnar hefðu verið skotnar niður.
Today, in the Southern direction - minus three Russian Su-34 fighter bombers! pic.twitter.com/5F8ZmCOtgw
— Ukrainian Air Force (@KpsZSU) December 22, 2023
Þessar flugvélar hafa Rússar verið að nota til að varpa gömlum en stórum sprengjum sem búið er að setja vængi á og staðsetningarbúnað. Hægt er að varpa þeim hátt á lofti svo þær svífa tugi kílómetra.
Með þessari aðferð hafa flugmenn Su-34 flugvéla ekki þurft að fljúga svo nærri víglínunni að hægt sé að nota úkraínsk loftvarnarkerfi til að skjóta á þær.
Sprengjurnar sjást þar að auki verulega illa á ratsjám
Þannig geta Rússar varpað sprengjum úr mikilli fjarlægð, sem mjög erfitt er að skjóta niður, og valdið miklum skaða. Sprengjurnar eru flestar ekki nákvæmar en þær eru stórar og geta innihaldið hundruð kílóa af sprengiefni.
Sprengjurnar eru álíka kraftmiklar og stýriflaugar en kosta einungis brot af því sem flaugarnar kosta.
Video reportedly of a Russian FAB-1500M54 aviation bomb strike with a UMPK glide kit from a Su-34 bomber on the right bank of the Dnipro. https://t.co/YZ2DregyAchttps://t.co/mq5MSrBlcWhttps://t.co/qnEHbuHdNt pic.twitter.com/sIXKPHsALB
— Rob Lee (@RALee85) December 18, 2023
Fyrr í þessum mánuði bárust fregnir af því að Úkraínumenn hefðu skotið niður Su-24 sprengjuvél Rússa yfir Svartahafi. Su-24 þotur geta náð tvöföldum hljóðhraða og eru að mestu notaðar til að skjóta stýriflaugum.
Rússneskir herbloggarar sögðu að Su-24 þotan hefði verið skotin niður með Patriot-loftvarnarkerfi, sem Úkraínumenn hafa fengið frá bakhjörlum sínum.
Það kerfi er talið besta loftvarnarkerfi heimsins og Úkraínumenn hafa meðal annars notað það til að skjóta niður ofurhljóðfráar stýriflaugar Rússa. Kerfið hefur burði til að granda skotmörkum í mikilli fjarlægð, mikilli hæð og á miklum hraða.
Sjá einnig: Senda besta loftvarnarkerfið til Úkraínu
Patriot hefur verið í notkun frá níunda áratug síðustu aldar en hefur gengið í gegnum umfangsmiklar endurbætur og uppfærslur á þeim tíma. Sautján ríki heims nota kerfið til loftvarna þeirra á meðal Bandaríkin, Þýskaland, Ísrael, Japan, Holland, Suður-Kórea, Svíþjóð, Spánn, Taívan og Sádi-Arabía. Pólverjar hafa einnig gert samning um að kaupa nokkrum kerfum frá fyrirtækinu Raytheon og samstarfsaðilum þess.
Óstaðfestar fregnir herma að Úkraínumenn hafi fært Patriot-kerfi í suðurhluta Úkraínu nær víglínunni. Þannig væri hægt að nota kerfið til að sitja fyrir rússneskum flugmönnum með því að kveikja ekki á ratsjám kerfisins fyrr en herflugvélar eru nærri því.
Mögulegt er að eitthvað svipað hafi verið upp á tengingnum í dag en margt er enn óljóst.
Photo from the ejection site of one of the Su-34 pilots.
— Cloooud | (@GloOouD) December 22, 2023
Russian channels affiliated with Military Aviation wrote that there are both living and dead pilots.
| OFFICIALLY Ukrainian forces shot down 3 Su-34 aircrafts who carried KABs to strike the Ukrainian position on the pic.twitter.com/FKoogzV00G
Þá er útlit fyrir að Úkraínumenn gætu átt von á fleiri Patriot-kerfum, þar sem yfirvöld í Japan breyttu í morgun lögum ríkisins og heimiluðu sölu slíkra kerfa til Bandaríkjanna. Þaðan gætu þau borist til Úkraínu, samkvæmt frétt Japan Times.
F-16 á leiðinni samkvæmt Rutte
Úkraínumenn hafa bundið miklar vonir við að F-16 orrustuþotur geti hjálpað þeim að binda enda á áðurnefndar loftárásir Rússa, eða í það minnsta gera þær erfiðari og draga úr tíðni þeirra.
Eins og áður segir sagði Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, í morgun að verið væri að undirbúa sendingu átján slíkra herflugvéla til Úkraínu. Þetta sagði hann við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, þegar þeir töluðu saman í morgun.
Þjálfun úkraínskra flugmanna hófst í Rúmeníu fyrr á þessu ári en engar þotur hafa borist til Úkraínu svo vitað sé.
: I spoke with President @ZelenskyyUa again this morning. Naturally, we discussed the European Council s important decision last week to launch accession negotiations with Ukraine. I m impressed with Ukraine s progress so far, and the Netherlands stands ready to help Ukraine as
— Mark Rutte (@MinPres) December 22, 2023
F-16 herþotur eru í notkun víða um heim og í hundraðatali. Flestar þeirra eru þó líklega ekki í nægilega góðu ástandi og eru mörg ríki að skipta þeim út fyrir F-35 þotur frá Bandaríkjunum.
Úkraínumenn hafa um árabil reitt sig á gamlar herþotur frá tímum Sovétríkjanna. Margar hafa verið skotnar niður í stríðinu og aðrar hafa bilað en önnur ríki Austur-Evrópu hafa einnig sent gamlar þotur og varahluti til Úkraínu.
Eins og með skriðdreka og önnur vopnakerfi, munu Úkraínumenn þó þurfa að snúa sér að vestrænum vopnum þar sem skotfæri og varahlutir fyrir vopnakerfi frá Sovétríkjunum eru ekki framleidd víða.
Mikið veltur á því hvurslags flugskeyti Úkraínumenn fá frá bakhjörlum sínum. Fái þeir nýjustu kynslóð svokallaðra AMRAAM-flugskeyta, sem notuð eru til að skjóta niður flugvélar með öðrum flugvélum, myndi það auka til muna getu Úkraínumanna til að skjóta niður rússneskar herþotur.
Þessi flugskeyti eru sögð geta flogið á fjórföldum hljóðhraða hitt flugvélar í allt að 160 kílómetra fjarlægð. Úkraínumenn hafa verið að nota eldri kynslóðir þessara flugskeyta í loftvarnarkerfum sem kallast NASAMS og eru hönnuð til að skjóta niður eldflaugar og dróna.
Forsvarsmenn Raytheon, sem framleiða flugskeytin, voru í haust sagðir vinna að því að tvöfalda framleiðslugetu fyrirtækisins á þeim.