Innlent

Grind­víkingar geta á­fram verið í Grinda­vík

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lögregla minnir á að hættumatskort geti breyst með skömmum fyrirvara.
Lögregla minnir á að hættumatskort geti breyst með skömmum fyrirvara. Vísir/Arnar

Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara til Grindavíkur og dvelja heima hjá sér miðað við uppfært hættumatskort Veðurstofu Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þar kemur fram að nýtt hættumatskort verði í gildi næstu tvo daga, til klukkan 18:00 þann 29. desember. Samkvæmt kortinu er enn töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum og sprunguhreyfingum.

Ítrekað er í tilkynningu lögreglu að breytingar á hættumatskorti geta orðið með skömmum fyrirvara. Sérstaklega er ítrekað að eldgos geti hafist í nágrenni bæjarins með stuttum fyrirvara.

Þá er sérstaklega ítrekað að erfitt geti reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista í bænum. Þeir sem fari inn á merkt hættusvæði geri það á eigin ábyrgð.

Þá er viðbragð björgunarsveita áfram skert. Engin björgunarsveit verður í Grindavík. Íbúar sem þurfi aðstoð fái hana með því að hringja í 112.

Muni gos hefjast í eða við Grindavík verða send út SMS skilaboð á farsíma inni á svæðinu. Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins og verið hefur allan sólarhringinn. Mögulegar flóttaleiðir eru um Nesveg, Suðurstrandarveg og Grindavíkurveg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×