Innlent

Lög­reglan leitar að grárri Toyotu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Toyotan er af gerðinni C-HR Hybrid.
Toyotan er af gerðinni C-HR Hybrid. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir grárri Toyotu, sem er nánar tiltekið af gerðinni C-HR Hybrid.

Bílnúmer bílsins sem leitað er að er BF-B89.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni, en þar kemur fram að bíllinn sé staddur einhversstaðar á höfuðborgarsvæðinu.

Fólk sem sér bílinn er beðið um að hafa samband við lögregluna. Þá birtir lögreglan mynd af sams konar bifreið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×